Sími : 5 800 900
Næring og holdafar

Handbók fyrir leikskólaeldhús er komin út

17.10.2005

Komin er út á vegum Lýðheilsustöðvar Handbók fyrir leikskólaeldhús með hagnýtum ábendingum fyrir starfsfólk leikskóla um hollustu og samsetningu fæðunnar, matseðlagerð, matreiðslu, sérfæði, hreinlæti og innkaup.

leikskólahandbók forsiða, smellið á mynd til að stækkaEinnig er kynnt ný fyrirmynd að æskilegri samsetningu máltíða sem kölluð er Diskurinn. Handbókinni fylgir líka veggspjald með helstu minnispunktum úr handbókinni til að hengja upp í eldhúsinu. Auk þessa er í henni er tillaga að sex vikna matseðli ásamt uppskriftum. Starfshópur á vegum Lýðheilsustöðvar vann handbókina.

Miðað við lengd leikskóladagsins þurfa mörg börn að fullnægja um 70% af orku- og næringarefnþörf sinni með þeim mat sem þau fá í leikskólanum. Það er því mikilvægt að vandað sé til verksins þar sem góð næring er undirstaða þess að börnin nái að þroskast, og dafna sem best. Handbókin á því erindi við alla sem koma að matargerð og máltíðum leikskólabarna og er það von Lýðheilsutöðvar að hún komi að gagni við að bjóða börnunum hollan og góðan mat.

Handbókin er vegleg og fallega myndskreytt mappa sem stendur leikskólum til boða fyrir kr. 1.500 kr.



Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica