Handbók fyrir starfsfólk skólamötuneyta
Handbókin hefur verið endurskoðuð með tilliti til nýrra ráðlegginga um hollt mataræði og næringarefni frá s.l. ári. Einnig er kynnt ný fyrirmynd að æskilegri samsetningu máltíða sem kölluð er Diskurinn. Handbókinni fylgir líka lítið veggspjald til að hengja upp í eldhúsinu með helstu minnispunktum úr handbókinni. Starfshópur á vegum Manneldisráðs vann handbókina upphaflega og var verkefnið styrkt af Fræðsluráði Reykjavíkur, Hjartavernd, Krabbameinsfélaginu og Manneldisráði en endurskoðun fór fram á vegum Lýðheilsustöðvar.
Um er að ræða veglega möppu og stendur hún skólum til boða gegn 1000 kr/eintak.
Þeim skólum sem eiga fyrri útgáfu handbókarinnar er eindregið bent á að fá, sér að kostnaðarlausu, þær síður sem hafa verið endurskoðaðar til að setja í handbókina, í stað þeirra sem eru í eldri útgáfunni.
Það er von okkar á Lýðheilsustöð að handbókin komi að gagni við að bjóða börnum góðan og hollan mat í skólanum.
