Sími : 5 800 900
Næring og holdafar

Akrylamíð í fæðu

29.8.2005

Vegna fréttar um að brátt verði skylda í Kalíforníuríki í Bandaríkjunum að vara við akrylamíði í frönskum kartöflum og kartöfluflögum vill Lýðheilsustöð koma á framfæri frekari upplýsingum um efnið.

Í Morgunblaðinu 28. ágúst  s.l. birtist frétt þess efnis að hugsanlega verði bráðlega skylt að láta sérstaka viðvörun fylgja frönskum kartöflum og kartöfluflögum í Kaliforníu vegna þess að þær innihaldi akrylamíð. Ekki liggja enn fyrir rannsóknaniðurstöður sem sýna áhrif akrylamíðs í fæðu á heilsuna en slíkar rannsóknir eru í gangi ásamt ýmsum öðrum rannsóknum á þessu efni. Akrylamíð fyrirfinnst ekki í hráefnum eða matvælum frá náttúrunnar hendi heldur myndast við mikla hitun sterkjuríkra matvæla, einkum við steikingu. Mest hefur mælst af akrylamíði í kartöfluflögum og steiktum frönskum kartöflum en ekkert virðist myndast við suðu og því eru soðnar kartöflur, hrísgrjón og pasta laus við efnið. Ekki hefur þótt ástæða til að breyta ráðleggingum um hollt mataræði í ljósi þessara niðurstaðna. Enn sem fyrr er lögð áhersla á fjölbreytt fæði og að auka neyslu grænmetis, ávaxta, kornvara og fisks. Þetta leggur hins vegar aukna áherslu á að forðast kartöfluflögur, snakk, franskar kartöflur og kex. Eins er fólki ráðlagt að steikja ekki mat of mikið eða við háan hita. Að öðru leyti eru niðurstöður enn ekki nógu skýrar til að hægt sé að koma með frekari ábendingar um breytt fræðuval.



Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica