Nýjar Norrænar ráðleggingar um næringu og hreyfingu
Næg hreyfing í tengslum við hollt mataærði er boðskapur nýju Norrænu næringarráðlegginganna.
Ráðleggingarnar taka mið af nýjum vísindarannsóknum á sviði næringar og heilsu auk neysluvenja og heilsufars í norrænu löndunum. Í bókinni er lýst þeim vísindalega grunni sem ráðleggingar um orku- og næringarefni byggja á. Einnig er lýst hlutverki þeirra í líkamanum og afleiðingum of lítillar og of mikillar neyslu þeirra.
Helstu nýjungar eru þær, að sérstakur kafli er um matvæli þar sem gefið er yfirlit yfir tengsl milli neyslu ákveðinna matvæla og hættunnar á að þróa mismunandi sjúkdóma. Einnig er í fyrsta sinn fjallað um gildi hreyfingar í næringarráðleggingunum og mælt með daglegri hreyfingu í a.m.k. 30 mínútur fyrir fullorðna og a.m.k. 60 mínútur fyrir börn og unglinga.
