Sími : 5 800 900
Næring og holdafar

Matur fyrir aldraða

1.4.2005

Lýðheilsustöð vill vekja athygli á ritinu Matur fyrir aldraða sem er ætlað öllum þeim sem vinna við hjúkrun aldraðra eða útbúa mat fyrir gamalt fólk, hvort heldur sem er á stofnunum eða í heimahúsum. Bæklingurinn var unnin af samstarfshópi um öldrunarmál á vegum Manneldisráðs en markmiðið með útgáfunni var að matur sem borinn er fyrir gamalt fólk sé bæði hollur og lystugur og hæfi gömlu fólki.

Þarfir aldraðra eru mismunandi og í ritinu er gerður skýr greinarmunur á þeim mat sem hæfir fólki við góða heilsu og hinum sem eru orðnir sjúkir og illa á sig komnir. Orkuþörf minnkar með aldrinum, aðallega vegna vöðvarýrnunar og minni hreyfingar. Þörf fyrir vítamín, steinefni, prótein og trefjaefni minnkar hins vegar ekki að sama skapi með aldinum. Því þarf fæði aldraðra að vera næringarríkt eigi það að rúma öll nauðsynleg næringarefni í minni fæðuskömmtum.



Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica