Lýðheilsustöð óskar landsmönnum gleðilegrar hátíðar - njótum hennar á heilbrigðan hátt
Vel er hægt er að njóta hátíðarinnar og allra jólakræsinganna án þess að það þurfi að hafa slæm áhrif á heilsuna. Í léttum jólapistli er bent á auðveldar leiðir til þessa - og hvatt til hreyfingar og slökunar inn á milli.
Jólin og maturinn
Nú er jólaundirbúningurinn að ná hámarki en jólahátíðin - og í raun desembermánuður allur - er mikil matarhátíð hjá mörgum. Margt er aðeins á borðum í desembermánuði og því eðlilegt að tilhlökkunin sé mikil að fá að njóta góða bragðsins. Það þarf svo sem ekki að hafa af því áhyggjur þótt brugðið sé út af vananum í örfáa daga á ári. Oft er sagt að það sem fitar mann sé ekki það sem maður borðar milli jóla og nýárs heldur það sem maður borðar milli nýárs og jóla. Það er mataræðið yfir árið í heild sem skiptir megin máli. Þó er það staðreynd að hjá mörgum er meira og minna allur desembermánuður undirlagður af veislumat og því ekki úr vegi að huga að því hvernig við getum gert jólahátíðina, og matinn sem henni fylgir, heilsusamlegri.
Hollari jólamatur
Veislumatur þarf alls ekki að vera óhollur og hægt er að gera smáar breytingar á matreiðslu í átt að hollustu án þess að það þurfi að hafa mikil áhrif á bragð matarins.
Það að nota fituminni rjóma í sósuna og sýrðan rjóma í staðinn fyrir majónes í salatið getur gert jólamatinn aðeins léttari. Meðlætið skiptir einnig máli; ekki gleyma grænmetinu og reynum frekar að borða minna af steikinni og sósunni og meira af rauðkáli, salati og kartöflum. Gott er að vera með ávexti í eftirrétt og millibita, velja léttari mat dagana á milli veisluhalda og gleyma ekki morgunmatnum.
Huga að skammtastærðum
Það er auðvelt að borða of mikið yfir hátíðarnar. Því er gott ráð að gefa sér tíma til að njóta matarins, borða hægt og skammta sér minna á diskinn. Huga að gæðum frekar en magni. Það þarf t.d. ekki að bera fram stóra sælgætisskál, hafa magnið frekar minna og leggja áherslu á gæðin.
Drekkum vatn, að minnsta kosti með öðrum drykkjum
Vatn ætti að eiga sér fastan stað á jólaborðinu. Oft gleymist hversu mikla orku er hægt að innbyrða með drykkjum. Fæstir drykkir eru þess eðlis að við verðum södd af þeim og því er orkan sem við fáum úr þeim gjarnan hrein viðbót við orkuna sem við
fáum úr matnum. Vatn inniheldur aftur á móti enga orku og er því ákjósanlegasti drykkurinn með matnum og við þorsta.
Hreyfum okkur daglega
Samhliða því sem hugað er að mataræðinu er ekki síður gott að huga að sinni daglegu hreyfingu yfir jólin, líkt og aðra daga ársins. Tilvalið er að eiga skemmtilegar samverustundir með fjölskyldu og vinum með því að fara í gönguferð, í sund eða á skauta. Ef snjór er nægur má m.a. skella sér á snjóþotu, á skíði eða bara búa til snjókarl. Hvaða leið sem er valin til hreyfingar er líklegt að okkur líði betur en annars og að við njótum þess enn frekar að borða góða jólamatinn og slaka á yfir hátíðisdagana.
Bryndís Elfa Gunnarsdóttir
verkefnastjóri næringar, Lýðheilsustöð
Gígja Gunnarsdóttir
verkefnastjóri hreyfingar, Lýðheilsustöð
