Sími : 5 800 900

Næring og holdafar

Lýðheilsustöð óskar landsmönnum gleðilegrar hátíðar - njótum hennar á heilbrigðan hátt - 22.12.2010

HJH_Vetrarmynd_07_MinniVel er hægt er að njóta hátíðarinnar og allra jólakræsinganna án þess að það þurfi að hafa slæm áhrif á heilsuna.  Í léttum jólapistli er bent á auðveldar leiðir til þessa - og hvatt til hreyfingar og slökunar inn á milli. 

Lesa meira
 

Könnun á mataræði Íslendinga - 10.9.2010

matardiskur_gLýðheilsustöð og Matvælastofnun í samvinnu við Rannnsóknastofu í næringarfræði við Háskóla Íslands eru um þessar mundir að hefja könnun á mataræði og neysluvenjum landsmanna. Um tvö þúsund manns á aldrinum 18-80 ára geta því átt von á bréfi með beiðni um þátttöku, en könnunin fer þannig fram að haft verður samband við þátttakendur símleiðis og spurt um mataræði og neysluvenjur. 

Lesa meira
 

Samningur um landskönnun á mataræði Íslendinga - 22.6.2010

-LHS_22Jun2010-002_1200

Undirritaður var í dag samstarfssamningur Lýðheilsustöðvar, Matvælastofnunar (MAST) og Rannsóknastofu í næringarfræði (RÍN) um framkvæmd Landskönnunar á mataræði Íslendinga.

Deildu með öðrum

Lesa meira
 

Margar góðar ástæður fyrir því að borða 5 skammta af grænmeti og ávöxtum á dag - 13.4.2010

tomatur

Í tenglsum við niðurstöðu nýrrar rannsóknar vill Lýðheilsustöð koma á framfæri að  margar góðar ástæður eru fyrir því að borða 5 skammta af grænmeti og ávöxtum á dag.

Lesa meira
 

Ný handbók fyrir framhaldsskóla - 22.3.2010

mappa-forsida717pHandbók um mataræði í framhaldsskólum

er komin út á vegum Lýðheilsustöðvar. Handbókin er gefin út í tengslum við verkefnið Heilsueflandi framhaldsskóli og er ætluð sem stuðningur við skólann í vinnu sinni við að stuðla að hollu mataræði nemenda og starfsfólks.

Lesa meira
 

Upplýsingar um transfitusýrur - 24.2.2010

kleinurNýlega var greint frá niðurstöðum nýrra greininga á transfitusýrum  í völdum matvælum á Íslandi. Lýðheilsustöð hefur í kjölfarið tekið saman smá fróðleik um transfitusýrur sem hægt er að skoða hér.

Lesa meira
 

Fitusýrur í matvælum - ný greining - 28.1.2010

franskar,-matis

Á árunum 2008 og 2009 voru gerðar hjá Matís ohf fitusýrugreiningar á 51 sýni af matvörum í þeim tilgangi að uppfæra gögn í ÍSGEM gagnagrunninum um efnainnihald matvæla. Verkefnið var unnið í samstarfi við Lýðheilsustöð og Matvælastofnun. Áhersla var lögð á að kanna magn trans-fitusýra í unnum matvælum og því voru tekin sýni af borðsmjörlíki, bökunarvörum, djúpsteikingarfeiti, mat frá skyndibitastöðum, ís, kexi, snakki og sælgæti.

Lesa meira
 

Tillögur um framboð á matvörum í íþróttamannvirkjum - 18.1.2010

Íþróttafélög og íþróttamannvirki - framboð á matvörum. Smellið á myndina til að skoða bæklinginnLýðheilsustöð hefur gefið út fræðsluefnið Tillögur um framboð á matvörum í íþróttamannvirkjum og hjá íþróttafélögum en markmiðið með útgáfunni er að stuðla að hollri næringu íþróttaiðkenda. Íþróttabandalag Reykjavíkur (ÍBR), Íþrótta- og tómstundaráð Reykjavíkur (ÍTR) og Íþróttasamband Íslands (ÍSÍ) standa að kynningu á efninu ásamt Lýðheilsustöð.  

Lesa meira
 

Mikilvægt að fylgjast með koffínneyslu barna og unglinga - 18.1.2010

Í ljósi þess að talsvert framboð er nú af drykkjarvörum og öðrum matvælum sem innihalda koffín telur Lýðheilsustöð ástæðu til að hvetja foredra og aðra til að fylgjast vel með koffínneyslu barna og unglinga. Koffín veldur útvíkkun æða, örari hjartslætti og auknu blóðflæði til allra líffæra. Einnig hefur koffín áhrif á öndun, meltingu og þvagmyndun. Mikil neysla á koffíni getur valdið höfuðverk (sem er líka fráhvarfseinkenni), svima, skjálfta, svefnleysi, hjartsláttartruflunum og kvíða.

Lesa meira
 

Fæðuframboð á Íslandi 2008 - Verulegur samdráttur á ávöxtum og grænmeti - 11.1.2010

Tölur um fæðuframboð á Íslandi fyrir árið 2008.
Lýðheilsustöð birtir reglulega upplýsingar um fæðuframboð á Íslandi og þó þær veiti ekki beinar upplýsingar um neyslu gefa þær vísbendingar um þróun á mataræði þjóðarinnar. 

Lesa meira
 

Mataræði á nýju ári - 6.1.2010

Í upphafi árs leiða margir hugann að því hvað þeir geti gert til að stuðla að bættu heilsufari. Einn þáttur sem tengist heilsu og við getum haft áhrif á er mataræðið en með góðu fæðuvali má draga úr líkunum á ýmsum sjúkdómum. Það er því ekki úr vegi að rifja upp ráðleggingar Lýðheilsustöðvar – manneldisráðs um mataræði og nærignarefni en markmiðið með þeim er meðal annars að draga úr líkunum á ýmsum sjúkdómum og stuðla að sem bestri líðan landsmanna.

Lesa meira
 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica