Sími : 5 800 900

Næring og holdafar

Hvað borða íslensk börn á leikskólaaldri? - 30.10.2009

Hvað borða íslensk börn á leikskólaaldri? Smella á myndina til að skoða skýrslunaKomin er út skýrsla með niðurstöðum könnunar á mataræði 3ja og 5 ára barna á höfuðborgarsvæðinu árið 2007. Rannsóknastofa í næringarfræði (RÍN) og Lýðheilsustöð stóðu að rannsókninni en hún var unnin af RÍN 2007-2008. Rannsóknin leiddi í ljós bæði jákvæðar og neikvæðar hliðar á mataræði barnanna, s.s. að fiskneysla væri í samræmi við ráðleggingar en langt væri í land með ávaxta- og grænmetisneyslu.

Lesa meira
 

Líkamsþyngd og holdafar fullorðinna Íslendinga frá 1990-2007 - 28.9.2009

Lýðheilsustöð kynnti í dag niðurstöður rannsóknar sinnar á líkamsþyngd og holdafari fullorðinna Íslendinga og á sama tíma kom út skýrsla um rannsóknina.Skýrsla (PDF) Lesa meira
 

Nýtt fræðsluefni um næringu barna - fyrir dagforeldra og ungbarnaleikskóla - 21.9.2009

R´ðleggingar um næringu barna, fyrir dagforeldra og starfsfólk ungbarnaleikskóla. smellið á mynd til að stækka. Út er komið hjá Lýðheilsustöð nýtt fræðsluefni: Ráðleggingar um næringu barna, fyrir dagforeldra og starfsfólk ungbarnaleikskóla. Tilgangurinn með útgáfunni er að auðvelda þessum aðilum að gefa börnunum hollan og góðan mat við þeirra hæfi. Lesa meira
 

Síðdegishressing fyrir börnin á frístundaheimilum - 15.5.2009

Börn að borða. smellið á myndina til að stækkaNauðsynlegt er fyrir börn, sem dvelja á frístundaheimilum eftir að skóladegi lýkur, að fá staðgóða hressingu síðdegis. Lýðheilsustöð og nemar í lýðheilsu-næringarfræði við HÍ könnuðu hvernig næringarmálunum væri háttað í frístundaheimilum á öllu landinu og niðurstaða könnunarinnar leiddi í ljós að flest þeirra bjóða börnunum síðdegishressingu. Aftur á móti mættu frístundaheimilin bæta sig í því að fara að ráðleggingum Lýðheilsustöðvar um fæðuval í síðdegishressingu. Lesa meira
 

Samstarf við bakara um minna salt í brauðum - 29.4.2009

RúgbrauðLýðheilsustöð hefur hvatt bakara landsins til að draga úr salti í brauðum, sem margir hafa þegar gert. Þetta er liður í að stuðla að minni saltneyslu landsmanna, sem heilsunnar vegna er of mikil. Landsmenn borða talsvert af brauði, þótt neysla grófs brauðs mætti vera meiri, og með því að minnka saltmagnið geta bakarar lagt sitt af mörkum til bættrar heilsu landsmanna. Lesa meira
 

Brjóstamjólk besta næringin fyrir ungbörn - 23.3.2009

Barn á brjósti - næring ungbarna. Smellið á mynd til að stækka. Fyrir skömmu birtust fréttir um að danskir vísindamenn, sem mælt hafa eiturefni í brjóstamjólk, teldu ekki ráðlegt að gefa börnum hana eftir fjögurra mánaða aldur. Þetta gengur þvert á ráðleggingar danskra heilbrigðisyfirvalda sem vísa þessu á bug. Landlæknisembættið, Lýðheilsustöð og Miðstöð heilsuverndar barna leggja mikla áherslu á að brjóstamjólk sé besta næring fyrir ungbörn enda er talið að kostir móðurmjólkur sem helsta næring barna á fyrsta ári vegi miklum mun þyngra en gallar. Lesa meira
 

Fæðuframboð á Íslandi 2007- Aukning á ávöxtum og grænmeti en einnig harðri fitu - 17.2.2009

Lýðheilsustöð hefur birt tölur um fæðuframboð á Íslandi fyrir árið 2007 hér á heimasíðunni. Þessar upplýsingar eru unnar reglulega og þótt þær veiti ekki upplýsingar um neyslu gefa þær vísbendingar um þróun á mataræði þjóðarinnar.

Lesa meira
 

Borðum fisk á nýju ári - 5.1.2009

Fiskur tvisvar í viku. Smellið á mynd til að stækka. Nú þegar jól og áramót eru að baki, með tilheyrandi stórsteikum og öðrum orkuríkum mat, er um að gera að fagna nýju ári með því að hafa fisk á borðum. Fiskur er nefnilega heilsusamlegur matur fyrir alla aldurshópa. Lesa meira
 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica