Sími : 5 800 900

Næring og holdafar

Auðvelda valið verði holla valið - 12.11.2008

Kolsýrt vatn, smellið á mynd til að stækka.Hluti af fræðslustarfi Lýðheilsustöðvar er að miðla upplýsingum um hollustu matvæla í þeim tilgangi að auðvelda fólki að velja það sem er hollara fyrir heilsuna framyfir það sem talist getur óhollara. Liður þar í eru fastir pistlar í Morgunblaðinu sem bera heitið Hollráð um heilsuna. Í þessri viku er fjallað um vatn og bragðbætta vatnsdrykki og áhrif þeirra á tannheilsu, ef einhver eru. Lesa meira
 

Síðdegishressing í eftirskólum og á frístundaheimilum - 11.11.2008

Nauðsynlegt er fyrir börn að fá síðdegishressingu og þar þarf að hafa heilsu barnanna í huga, bæði til skamms og langs tíma litið. Til hægðarauka fyrir starfsfólk þá hefur Lýðheilsustöð gefið út ráðleggingar um hvers konar mat sé æskilegt að bjóða sem síðdegishressingu í eftirskólum og frístundaheimilum sveitarfélaganna. Lesa meira
 

Af bestu lyst 3 - hollt, gott og girnilegt - 3.11.2008

Af Bestu Lyst, 3. Smellið á myndina til að stækka. Út er komin matreiðslubókin Af bestu lyst 3 en Lýðheilsustöð, Hjartavernd og Krabbameinsfélagið unnu með bókaforlaginu Vöku-Helgafelli að útgáfu bókarinnar. Nanna Rögnvaldardóttir, sem er landsþekkt fyrir mataruppskriftir sínar, valdi uppskriftirnar í þessa bók en eins og í fyrri bókunum, Af bestu lyst 1 og 2, fara hér saman uppskriftir að hollum og góðum mat sem jafnframt er girnilegur og spennandi. Lesa meira
 

Munum eftir þorskalýsinu - ein teskeið á dag - 29.10.2008

Þorskalýsi. smella á mynd til að stækkaNú þegar vetur er genginn í garð og sól lækkar á lofti er vert að minna á nauðsyn þess að fá sér daglega 1 teskeið (5 ml) af þorskalýsi eða annan D-vítamíngjafa. Lesa meira
 

Lykillinn að hollum skólamat - handbækur fyrir leikskólaeldhús og grunnskólamötuneyti - 25.8.2008

Skólabörn borða. Smella á mynd til að stækka. Nú þegar líða tekur að hausti og grunnskólar og leikskólar eru að fara í gang eftir sumarfrí vill Lýðheilsustöð minna á hve mikilvægt er að sá matur sem börnum og unglingum stendur til boða sé hollur og næringarríkur. Lýðheilsustöð mælir með því að eldhús í grunn- og leikskólum nýti sér Handbók fyrir skólamötuneyti eða Handbók fyrir leikskólaeldhús sem Lýðheilsustöð gaf út.

Lesa meira

 

Nýtt íslenskt grænmeti og nýtínd krækiber og bláber - 11.8.2008

gulrætur eru herramannsmaturÁ þessu árstíma er gott úrval af nýju íslensku grænmeti á boðstólnum í matvörubúðum og því er tilvalið að landsmenn nýti sér þetta mikla úrval. Lesa meira
 

Næring ungbarna á 5 tungumálum - 9.6.2008

Forsíða bæklingsins Næring ungbarna. Smella á myndina til að skoða bæklinginn.Lýðheilsustöð hefur látið þýða íslenskan texta fræðsluefnis sem snýr að næringu ungbarna á 5 tungumál. Um er að ræða bæklinginn Næring ungbarna, útgefinn 2003 af heilsugæslunni og Lýðheilsustöð sem nú hefur verið þýddur á ensku, pólsku, rússnesku, spænsku og taílensku.

Lesa meira

 

Mataræði aldraðra - ný handbók - 30.4.2008

Mynd af forsíðu Handbókar um mataræði aldraðra. Smella á mynd til að skoða bókina. Komin er út á vegum Lýðheilsustöðvar Handbók um mataræði aldraðra sem ætlað er að auðvelda þeim störfin sem vinna við að skipuleggja matseðla og útbúa mat fyrir aldraða eða vinna við hjúkrun aldraðra. Handbókin kemur í handhægri plastmöppu í A4 stærð og fæst endurgjaldslaust. Lesa meira
 

Vítamín og steinefni - fræðslubanki - 27.3.2008

Hnappur fyrir vefsíðu um vítamína- og steinefnafræðslubankann.

Lýðheilsustöð og Matvælastofnun hafa opnað vefsíðu með upplýsingum og fræðslu um helstu vítamín og steinefni: www.lydheilsustod.is/vitamin

Lesa meira
 

Viðbættur sykur í matvælum - 6.2.2008

Viðbættur sykur í matvælum hefur verið áberandi í umræðunni að undanförnu. Lýðheilsustöð hefur tekið saman ýmsan fróðleik um viðbættan sykur, t.d.: Hvað er viðbættur sykur? Einnig ráðleggingar um neyslu, myndir sem sýna viðbættan sykur í ýmsum vörutegundum og fleira. Þess er vænst að þessar upplýsingar veiti svör við einhverjum þeirra spurninga sem leitað hefur verið svara við. Lesa meira
 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica