Sími : 5 800 900

Næring og holdafar

Bókin Holdafar-hagfræðileg greining hlýtur mjög góðar viðtökur - 5.12.2007

TinnaBókin Holdafar – hagfræðileg greining, eftir Tinnu Laufeyju Ásgeirsdóttur heilsuhagfræðing, sem Lýðheilsustöð gaf út fyrir skömmu, hefur hlotið mikla athygli og um hana verið fjallað í mörgum fjölmiðlum landsins. Lesa meira
 

HOLDAFAR - hagfræðileg greining - 23.11.2007

Ofþyngd eða offita er sá heilsufarskvilli sem í auknum mæli hrjáir íbúa hins vestræna heims, Ísland þar meðSmella á auglýsinguna til að stækka. talið því meirihluti fullorðinna Íslendinga er yfir kjörþyngd. En hvaða hagfræðilegu áhrif á samfélagið hafa þeir lifnaðarhættir íbúanna sem orsaka þennan kvilla? Dr. Tinna Laufey Ásgeirsdóttir, heilsuhagfræðingur, leitar svara við þessari spurningu, og fleirum er snerta holdafar, í nýútkominni bók sinni Holdafar – hagfræðileg greining, sem var að koma út kom á vegum Lýðheilsustöðvar. Kynning verður í Norræna húsinu í hádeginu mánudaginn 26. nóvember. Lesa meira
 

DISKURINN - nýtt fræðsluefni - 13.11.2007

Lýðheilsustöð hefur gefið út veggspjald í tveimur stærðum með Disknum, sem sýnir hvernig hægt er á  auðveldan hátt að stuðla að vel samsettum máltíðum.diskurinn_A4_plakat_hires Lesa meira
 

Tengsl lífshátta og krabbameins - 2.11.2007

Hvernig mataræði okkar er háttað og hversu mikið eða lítið við hreyfum okkur hefur áhrif á hættuna á því aðSecond_Expert_Report001. Smella á mynd til að skoða skýrsluna. fá krabbamein, eins og fram kemur í nýrri skýrslu World Cancer Research Fund og American Institute for Cancer Research ,,Food, Nutrition, Physical Activity, and the Prevention of Cancer: a Global Perspective”. Lesa meira
 

Fæðuframboð á Íslandi 2006 - Aukning á ávöxtum og grænmeti en minnkun á sykri - 8.10.2007

Lýðheilsustöð hefur birt tölur um fæðuframboð á Íslandi fyrir árið 2006 hér á heimasíðunni. Þessar upplýsingar eru unnar reglulega og þó þær veiti ekki upplýsingar um neyslu gefa þær vísbendingar um þróun á mataræði þjóðarinnar. Lesa meira
 

Aðgerðaáætlun á sviði matvæla- og næringarstefnu 2007-2012 - 1.10.2007

Samþykkt hefur verið aðgerðaráætlun um framkvæmd matvæla- og næringarstefnu í Evrópu fyrir tímabilið 2007 – 2012 (Second WHO European Action Plan for Food and Nutrition Policy 2007-2012). Lesa meira
 

Lýðheilsustöð fagnar framtaki verslunarinnar - 17.9.2007

Forsvarsmenn matvöruverslana hafa undirritað yfirlýsingu þess efnis að verslunarmenn hvetji til aukinnar hollustu og betri lífshátta með neyslu hollari fæðu og aukinni hreyfingu. Undirritunin fór fram á vel sóttum morgunverðarfundi sem bar yfirskriftina ,,Aukið heilbrigði – ábyrgð atvinnulífsins". Lýðheilsustöð fagnar þessu framtaki Samtaka verslunar og þjónustu. Lesa meira
 

Litarefni og ofvirkni - 10.9.2007

Niðurstöður nýlegrar breskrar rannsóknar gefa til kynna að hugsanlega geti verið tengsl milli ákveðinna litarefna sem notuð eru í matvælaiðnaði, t.d. í sumar tegundir gos- og svaladrykkja og sælgæti, og ofvirkni hjá börnum. Lesa meira
 

Fólat fyrir allar konur sem geta orðið barnshafandi - 21.8.2007

Fólat, smella á mynd til að stækkaÚt er kominn nýr fræðslubæklingur Fólat – fyrir konur sem geta orðið barnshafandi þar sem fjallað er um mikilvægi fólats fyrir konur á barneignaaldri. Lýðheilsustöð, Landlæknisembættið og Miðstöð mæðraverndar standa að útgáfu bæklingsins en efni hans er byggt á eldri bæklingi um sama efni, auk þess sem nýjar upplýsingar koma þar fram. Lesa meira
 

Prótein-neysla á Íslandi rífleg - 9.8.2007

Í tilefni umfjöllunar Morgunblaðsins um gagnagrunn um efnainnihald matvæla, „900 fæðutegundir komnar á skrá“, vill Lýðheilsustöð benda á að samkvæmt niðurstöðum landskönnunar á mataræði 2002 er prótein-neysla á Íslandi rífleg eða að meðaltali um 18% orku en ráðlagt er að prótein veiti 10-20% heildarorku. Heildarfituneysla hefur nálgast ráðleggingar og var um 35% orkunnar en harða fitan (mettaðar- og transfitusýrur) er enn allt of stór hluti fitunnar og veitir samtals um 16% orkunnar en æskilegt er að hún sé innan við 10% orkunnar. Lesa meira
 

Hvaða efni eru í matnum? - 18.6.2007

granmeti_(ur_5_a_dag)Nú er á auðveldan hátt hægt að nálgast upplýsingar hjá Matís um efni sem eru í algengum matvælum. Upplýsingarnar eru í íslenska gagnagrunninum ÍSGEM og segja til um allt að 45 efni í um 900 fæðutegundum. Lesa meira
 

Aðgerðaáætlun ESB gegn offitu - 4.6.2007

Framkvæmdastjórn Evrópusamabandsins (ESB) hefur sent frá sér hvítbók (White paper) um aðgerðir í baráttunni gegn offitu. Í hvítbókinni eru settar fram ýmsar tillögur um hvað lönd ESB geta lagt að mörkum í baráttunni gegn ofþyngd og offitu og öðrum heilsutengdum þáttum. Lesa meira
 

Notum olíu við matseld - 13.4.2007

Nokkuð hefur verið rætt að undanförnu um hvort ráðlagt sé að nota olíur til steikingar. Mælt er með að nota fljótandi jurtaolíu við alla matargerð þar sem því verður við komið í staðinn fyrir harða fitu (t.d. smjörlíki, smjör, steikingarfeiti, kókosolíu eða palmitín). Lesa meira
 

Frá fundi um samstarf um meira framboð af hollum mat - 30.3.2007

Miðvikudaginn 28. mars buðu heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið, Lýðheilsustöð og Samtök iðnaðarins til morgunverðarfundar á hótel Nordica þar sem til umfjöllunar var samstarf um aukið framboð á hollum matvörum, markaðssetning, vöruþróun og skammtastærðir.

Lesa meira

 

Transfitusýrur - 19.2.2007

Transfitusýrur hafa verið talsvert í umræðunni að undanförnu. Lýðheilsustöð hefur tekið saman nokkur áhersluatriði sem vonandi gefa svör við helstu spurningum sem vaknað hafa í kjölfar umræðunnar.

Lesa meira
 

Fiskuppskriftabæklingur gefinn á hvert heimili í landinu - 12.2.2007

Mynd, Borðum meiri fisk, smella á mynd til að stækkaBorðum meiri fisk! er heitið á nýjum bæklingi með 20 ljúffengum fiskuppskriftum sem Lýðheilsustöð hefur látið útbúa og gefur á hvert heimili í landinu. Þetta er liður í að stuðla að meiri fiskneyslu í landinu en hún fer stöðugt minnkandi sérstaklega hjá ungu fólki. Uppskriftabæklingurinn og átakið var kynnt í dag en pósturinn ber síðan bæklinginn í hvert hús í landinu í þessari viku. Lesa meira
 

Athygli vakin á stækkandi matarskömmtum - 1.2.2007

Á síðustu árum hefur meðvitund fólks um tengsl heilsu og mataræðis aukist mjög. Opinberir aðilar eins og Lýðheilsustöð og Manneldisráð hafa lagt áherslu á að fólk borði fjölbreytt fæði og velji sitt lítið að hverju. Fjölmargir velta fyrir sér og reyna að vera upplýstir um hvaða mat sé hollast að borða og hvernig haga skuli innkaupum og matmálstímum í samræmi við það.
Lesa meira
 

Mjúk fita í stað harðrar - 12.1.2007

Mikil og margvísleg umræða er um mat og mataræði í þjóðfélaginu þessa dagana. Lýðheilsustöð hefurMaður með olíu, smella á mynd til að stækka nýverið gefið út Ráðleggingar um mataræði, sem landsmenn er hvattir til að kynna sér, en í ljósi umræðunnar að undanförnu vill stöðin vekja sérstaka athygli á því að í ráðleggingunum er lögð áhersla á að nota olíu eða mjúka fitu í stað harðrar fitu og jafnframt að stilla neyslu á fitu og feitum matvörum í hóf. Lesa meira
 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica