Sími : 5 800 900

Næring og holdafar

Er fiskur af Íslandsmiðum mengaður? - 29.11.2006

fiskur-smella á mynd til að stækkaRannsóknarstofnun fiskiðnaðarins hefur undanfarin ár fylgst náið með magni mengunarefna - þungmálma og þrávirkra lífrænna efna - í fiski af Íslandsmiðum. Þessi efni mælast ætíð langt undir þeim viðmiðunarmörkum sem sett hafa verið af Evrópusambandinu í íslensku sjávarfangi, sem við borðum hvað mest af, t.d. ýsu, rækju, þorski, grálúðu, laxi, smálúðu, lúðu (minni en 1m eða 12 kg), ýmsum kolategundum og svo mætti lengi telja. Lesa meira
 

Ráðleggingar um mataræði og næringarefni - fyrir fullorðna og börn frá tveggja ára aldri - 20.11.2006

Ráðlegginar um mataræði, forsíða bæklingsKominn er út á vegum Lýðheilsustöðvar bæklingurinn Ráðleggingar um mataræði og næringarefni. Ráðleggingarnar eru ætlaðar fullorðnum og börnum frá tveggja ára aldri og eiga þær að auðvelda fólki að velja fæði í samræmi við næringarefna- og orkuþörf sem og ráðlagða dagskammta af ýmsum vítamínum og steinefnum. Lesa meira
 

Gróf brauð - góð heilsa - 18.9.2006

Íslendingar borða minnst Norður- og Eystrasaltslandanna af grófu brauði. Nú ætla bakarar að leggja sitt af mörkum til að auka neyslu landsmanna á hollu og trefjaríku brauði með því að leggja sérstaka áherslu á þessi brauð og gefa auk þess út hefti með upplýsingum um mikilvægi grófs brauðmetis fyrir heilsuna. Lesa meira
 

Gerum fiskinn aftur að þjóðarrétti - 15.9.2006

fiiskur_2Fiskneysla landsmanna fer stöðugt minnkandi og er það orðið áhyggjuefni. Ungt fólk borðar almennt sérlega lítið af fiski. Ýmislegt er verið að gera til að hvetja landsmenn til að borða meiri fisk og þessa dagana stendur yfir hátíðin Fiskirí en þar leggja um 80 veitingahús sérstaka áherslu á gómsæta fiskrétti.

Lesa meira
 

Hver er þróunin í mataræði Íslendinga? - 21.8.2006

Lýðheilsustöð hefur birt tölur um fæðuframboð á Íslandi fyrir árin 2004-2005. Þessar upplýsingar eru unnar reglulega og veita vísbendingar um þróun á mataræði þjóðarinnar. Tölurnar eru reiknaðar í kg/íbúa/ár samkvæmt jöfnunni: fæðuframboð=framleiðsla + innflutningur – útflutningur – önnur not (t.d. dýrafóður). Lesa meira
 

Fleiri öryrkjar vegna offitu - 6.7.2006

Öryrkjum á Íslandi, sem hafa örorku sem fyrstu sjúkdómsgreiningu, hefur fjölgað úr 37 einstaklingum árið 1992 í 111 árið 2004. Aukningin er 183% hjá konum en 263% hjá körlum. Þetta kemur fram í grein sem birtist í júlíhefti Læknablaðsins 2006. Lesa meira
 

Örbylgjumatur ekki skaðlegur við eðlilega meðhöndlun - 6.7.2006

Í ljósi umræðu um hættuna af því að borða örbylgjuhitaðan mat áréttar Lýðheilsustöð að samkvæmt fjölda rannsókna er örbylgjumatur ekki skaðlegur við eðlilega meðhöndlun. Lesa meira
 

Fjölmenn námsstefna um offitu barna, forvarnir og meðferð - 21.6.2006

Dagana 13. og 14. júní var haldin fjölmenn námsstefna um offitu barna, forvarnir og meðferð, á vegum Félags fagfólks gegn offitu, Lýðheilsustöðvar og Landlæknisembættisins. Tilgangur námsstefnunnar var að kynna reynslu af ólíkum meðferðarúrræðum og forvörnum sem gætu hugsanlega gagnast við skipulagningu og uppbyggingu úrræða hér á landi. Lesa meira
 

Hvað borða íslensk börn og unglingar? Ávaxta- og grænmetisneysla með því lægsta í Evrópu - 15.5.2006

Kynningarfundur var haldinn 15. maí í tilefniSmella á mynd til að skoða skýrslu af útkomu nýrrar skýrslu um niðurstöður rannsóknar á mataræði 9 og 15 ára barna og unglinga, sem Rannsóknastofa í næringarfræði og Lýðheilsustöð standa að en rannsóknin var unnin af RÍN 2003-2004. Höfundar skýrslunnar eru Inga Þórsdóttir, prófessor og Ingibjörg Gunnarsdóttir, dósent við Háskóla Íslands.

Lesa meira
 

Nýjar upplýsingar um aspartam - 10.5.2006

Matvælaöryggisstofnun Evrópu (EFSA) hefur metið nýja rannsókn á aspartam og staðfestir örugga notkun efnisins. Lesa meira
 

Flestir Íslendingar fá nóg af vítamínum og steinefnum úr fæðunni - 26.4.2006

Í ljósi umræðu um nauðsyn þess að fólk taki inn fæðubótaefni áréttar Lýðheilsustöð að samkvæmt rannsókn á mataræði Íslendinga þá fá flestir Íslendingar nóg af vítamínum og steinefnum úr fæðunni. Lesa meira
 

Ráðlagðir dagskammtar 2005 - 22.3.2006

Lýðheilsustöð-manneldisráð birta nýja ráðlagða dagskammta - RDS 2005 fyrir ýmis næringarefni og koma þeir í stað RDS frá 1996. Lesa meira
 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica