Ný íslensk rannsókn sýnir að það skiptir meira máli fyrir kalkbúskap líkamans að fá nægilegt magn af D-vítamíni heldur en að auka kalkskammtinn umfram ráðlagðan dagskammt. Rannsóknin, sem var unnin á Landspítala- háskólasjúkrahúsi í samvinnu við Lýðheilsustöð, birtist í nýjasta tölublaði bandaríska læknablaðsins
Journal of American Medical Association, en höfundar greinarinnar voru þau Laufey Steingrímsdóttir, Örvar Gunnarsson, Ólafur S. Indriðason, Leifur Franzson og Gunnar Sigurðsson.
Lesa meira