Beint í leiðarkerfi vefsins.
Manneldisráð og verðlagseftirlit ASÍ hafa þrjú síðastliðin ár kannað kostnað við að fylgja ráðleggingum um hollt mataræði. Um er að ræða samanburð á tveimur matarkörfum, hollustukörfu og meðalkörfu sem báðar veita jafnmargar hitaeiningar.
Embætti yfirdýralæknis, Landlæknisembættið, Lýðheilsustöð/Manneldisráð, Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins og Umhverfisstofnun sendu frá sér greinargerð varðandi neyslu á hrefnukjöti og öðru sjávarfangi fyrir barnshafandi konur og konur með börn á brjósti.
Lesa meiraÞann 24. mars 2003 voru kynntar helstu niðurstöður úr Landskönnun á mataræði 2002, en hliðstæð rannsókn hefur ekki farið fram frá árinu 1990. Alls tóku 1366 manns á aldrinum 15-80 ára þátt í könnuninni og var svarhlutfall 70,6%.