Sími : 5 800 900

Næring og holdafar

Breytingar á fæðuvenjum Íslendinga - 29.4.2011

Fæðuhringurinn sýnir æskileg hlutföll á samsetningu daglegrar fæðu. smellið á myndina til að stækka

Fæðuvenjur Íslendinga hafa breyst samfara minni kaupmætti og hækkuðu verðlagi. Minni neysla er á þeim matvörum sem hafa hækkað hvað mest í verði og eins þeim sem ekki teljast til brýnna nauðsynja.  Hugsanleg heildaráhrif á heilsu þjóðarinnar eru ekki augljós þar sem bæði neysla hollustuvara svo og sætinda og skyndibita hefur minnkað.

Lesa meira
 

Málþing um mat í skólamötuneytum - 6.4.2011

Málþing um mat í skólamötuneytum verður haldið 6. apríl kl. 15:00 að Stórhöfða 31 (gengið inn að neðanverðu). Þingið er haldið á vegum MATVÍS en Hólmfríður Þorgeirsdóttir, verkefnisstjóri næringar hjá Lýðheilsustöð heldur erindi sem hún byggir á efni handbókar Lýðheilsustöðvar fyrir skólamötuneyti.

Lesa meira
 

Hámarks magn transfitusýra í matvælum - 4.4.2011

Í nýrri reglugerð sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, sem tekur gildi 1. ágúst n.k., er kveðið á um hámarksmagn transfitusýra í matvælum. Samkvæmt reglugerðinni er óheimilt er að markaðssetja matvæli sem innhalda meira en 2 grömm af transfitusýrum í hverjum 100 grömmum af heildarfitumagni og er þetta gert að fyrirmynd Dana. Reglugerðin gildir um transfitusýrur sem myndast þegar olía er hert að hluta en gildir hins vegar ekki um transfitusýrur sem eru í dýrafitu frá náttúrunnar hendi.

Lesa meira
 

Stöndum vörð um hollustu og gæði skólamáltíða - 28.3.2011

Handbók fyrir skólamötuneyti. Smellið á mynd til að opna handbókina.

Í ljósi umræðu um niðurskurð í grunnskólum landsins vekur Lýðheilsustöð athygli á mikilvægi þess að staðið sé vörð um gæði skólamáltíða. Skólamáltíðir eru lögbundin þjónusta samkvæmt 23. grein grunnskólalaga nr. 91 frá 2008. Samkvæmt lögunum skulu nemendur eiga kost á málsverði á skólatíma í samræmi við opinber manneldismarkmið.

Lesa meira
 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica