Sími : 5 800 900
Hreyfing

Göngum í skólann 2010

9.9.2010

010B

Ísland tekur nú þátt í fjórða skipti í alþjóðlega verkefninu Göngum í Skólann. Verkefnið hófst í Bretlandi árið 2000 og hefur þátttaka aukist ár frá ári.
Átaksverkefnið Göngum í Skólann var sett formlega í gær í Fagralundi í Kópavogi af Ögmundi Jónassyni samgöngu- og sveitastjórnarráðherra.

 Við setninguna fluttu ávörp þær Rannveig Ásgeirsdóttir sem sæti á í skólanefnd Kópavogsbæjar og Oddný Sturludóttir formaður Menntaráðs Reykjavíkurborgar.

Ísland tekur nú þátt í fjórða skipti í alþjóðlega verkefninu Göngum í Skólann. Verkefnið hófst í Bretlandi árið 2000 og hefur þátttaka aukist ár frá ári. Á alþjóðavísu er Göngum í skólann mánuðurinn í október og alþjóðlegi Göngum í skólann dagurinn í ár er 6. október. Hægt er að velja hvort tekið er þátt í Göngum í skólan deginum, mánuðinum eða hluta úr mánuði. Hér á landi hófst verkefnið formlega 7. september og lýkur því á Alþjóðlega Göngum í skólann deginum.

2_strakar_bÞeir sem að verkefninu standa hérlendis eru Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Mennta- og menningarmálaráðuneytið, Lýðheilsustöð, Ríkis­lögreglu­stjóri, Slysavarnarfélagið Landsbjörg, Umferðarstofa og Landssamtökin Heimili og skóli.


Hægt er að fá nánari upplýsingar um verkefnið og ýmsar góðar ábendingar á heimasíðu þess www.gongumiskolann.is


Sjá fyrri frétt

Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica