Sími : 5 800 900
Hreyfing

Verkefnið Göngum í skólann 2010

3.9.2010

Gongumiskolann_200Alþjóðlega verkefnið Göngum í skólann í ár verður sett hér á landi miðvikudaginn 8. september næstkomandi kl. 10.00, í Fagralundi í Kópavogi, í samstarfi við Fossvogsskóla og Snælandsskóla
Megin markmið Göngum í skólann er að hvetja nemendur og foreldra til að ganga, hjóla eða fara á annan virkan hátt til og frá skóla en einnig að vekja til vitundar um heilsu, umhverfi og hreyfingu.

Í ár tekur Ísland þátt í verkefninu í fjórða sinn. Alþjóðlega Göngum í skólann  verkefninu var hleypt af stokkunum  í Bretlandi árið 2000 að danskri fyrirmynd frá 1976 og hefur þátttakan farið vaxandi um allan heim síðan.

Hér á landi stefnir nú í metþátttöku í ár. Alþjóðlegi Göngum í skólann dagurinn í ár er 6. október Í öðrum löndum er Göngum í skólann mánuðurinn víðast haldinn í október en með hliðsjón af veður- og birtuskilyrðum fer Göngum í skólann verkefnið á Íslandi fram í septembermánuði og lýkur á alþjóðlega Göngum í skólann deginum þann 6. október.

Megin markmið Göngum í skólann er að hvetja nemendur og foreldra til að ganga, hjóla eða fara á annan virkan hátt til og frá skóla, en einnig almennthvetja til aukinnar hreyfingar, að auka færni barna til að fara gangandi eða hjólandi í skólann, að fræða þau um ávinning reglulegrar hreyfingar, að kenna reglur um öryggi á göngu og hjóli, að draga úr umferðarþunga, mengun og hraðakstri nálægt skólum, að stuðla að betri loftgæðum og öruggari og friðsælli götum og skólahverfum, að stuðla að vitundarvakningu um ferðamáta og umhverfismál, að vekja spurningar um hversu „gönguvænt“ umhverfið er og hvar úrbóta er þörf, að hvetja til heilbrigðs lífsstíls fyrir alla fjölskylduna og að efla vitund um að hreyfing vinnur gegn hjartasjúkdómum, offitu og sykursýki II, stuðlar að streitulosun, betri sjálfsmynd, o.m.fl.

Þeir sem að verkefninu standa hérlendis eru Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Mennta- og menningarmálaráðuneytið, Lýðheilsustöð, Ríkis­lögreglu­stjóri, Slysavarnarfélagið Landsbjörg, Umferðarstofa og Landssamtökin Heimili og skóli.

Hægt er að fá nánari upplýsingar um verkefnið og ýmsar góðar ábendingar á heimasíðu þess www.gongumiskolann.is. Einnig er hægt að hafa samband við Örvar Ólafsson verkefnastjóra hjá Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands með tölvupósti orvar@isi.is eða í s. 514-4000


Tenglar á erlendar síður um efnið:

http://www.iwalktoschool.org/

http://www.walktoschool.org.uk/

http://www.saferoutesinfo.org/

http://www.walktoschool.org/




 

 

Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica