Í tilefni af alþjóðadegi hreyfingar 10. maí
- fræðslufundir um samgönguhjólreiðar
Árlega hvetur Alþjóðaheilbrigðismála-stofnunin aðildarþjóðir sínar til að halda alþjóðadag hreyfingar hátíðlegan. Tilgangur dagsins er að minna á lykilhlutverk daglegrar hreyfingar fyrir heilsu og vellíðan fólks á öllum aldri.
Landsmenn allir eru því hvattir til að meta eigin hreyfivenjur og leita leiða til að hreyfa sig í samræmi við ráðleggingar um hreyfingu.
Þema alþjóðadags hreyfingar á Íslandi þetta árið er samgönguhjólreiðar en ein einfaldasta leiðin til að auka hreyfingu í daglegu lífi er að hjóla eða ganga á milli áfangastaða. Auk þess sem ferðatíminn er nýttur til ókeypis heilsuræktar er hægt að spara kostnað vegna einkabílsins, draga úr umferðarþunga og stuðla að heilnæmara lofti.
Í tilefni dagsins munu Lýðheilsustöð og ÍSÍ ásamt umhverfissviði Reykjavíkur og Hjólafærni á Íslandi standa fyrir fræðslufundum um samgönguhjólreiðar í Reykjavík 10. maí, á Akureyri 11. maí, Ísafirði 12. maí og Selfossi 18. maí. Þar verður m.a. farið yfir ýmis hagnýt atriði sem auka ánægju og færni hjólandi vegfarenda í umferðinni.
Nánari upplýsingar um fræðslufundina eru á heimasíðu Hjólað í vinnuna, www.hjoladivinnuna.is.
