Sími : 5 800 900
Hreyfing

Ný handbók um hreyfingu fyrir grunnskóla

19.5.2010

Forsíða handbókarinnar um hreyfingu, Virkni í skólastarfi.Komin er út á vegum Lýðheilsustöðvar handbók um hreyfingu fyrir grunnskóla, Virkni í skólastarfi.

Hreyfing er mikilvægur liður við heilsueflingu í grunnskólum og er handbókin hugsuð sem hjálpartæki við þá vinnu.

Leitast hefur verið við að setja fram með heildrænum hætti stutt, hnitmiðað og hagnýtt stuðningsefni sem ætti að gagnast öllum þeim sem vilja með einum eða öðrum hætti skapa aðstæður sem stuðla að aukinni, daglegri hreyfingu í tengslum við skólastarf. Handbókin ætti einnig að nýtast við kennslu m.a. í grunn- og leikskólafræði, tómstunda- og félagsmálafræði, íþrótta- og heilsufræði og þroskaþjálfafræði.Handbókin samanstendur af 10 köflum.

Kafli 1 er hugsaður sem byrjunarreitur fyrir stefnumótun og aðgerðir sem snúa að hreyfingu í skólastarfi. Kafla 2 er sömuleiðis ætlað að vera inngangur fyrir efni annarra kafla en hann fjallar um ýmis hagnýt atriði sem snúa að stöðu starfsfólks gagnvart eigin hreyfingu og hreyfingu nemenda. Kaflar 3 til 8 hafa að geyma hugmyndir um hvernig er hægt að stuðla að aukinni hreyfingu í tengslum við mismunandi þætti skólastarfsins. Auk þess að skapa aðstæður sem hvetja nemendur og starfsmenn til að nota ferðamáta sem felur í sér hreyfingu (kafli 3) er mögulegt að flétta hreyfingu inn í almennar kennslustundir innandyra (kafli 4) og utandyra (kafli 5), virkja nemendur til hreyfingar í skólaíþróttum (kafli 6), í frímínútum (kafli 7) og auðvelda aðgengi að skipulögðu íþróttastarfi með góðu samstarfi skóla, íþróttafélaga, sveitarfélaga og annarra sem bjóða upp á skipulagt tómstundastarf (kafli 8). Kafli 9 fjallar um hönnun hreyfihvetjandi skólaumhverfis, innan og utandyra, og í kafla 10 er leikjabanki með enn fleiri hugmyndum um hvernig má auka hreyfingu nemenda við ýmis tækifæri.

Faghóp Lýðheilsustöðvar um verkefnið skipuðu fulltrúar frá Mennta- og menningarmálaráðuneytinu, Menntavísindasviði HÍ, Kennslufræði- og lýðheilsudeild HR, Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands, Íþróttakennarafélagi Íslands, Félagi íslenskra sjúkraþjálfara, Iðjuþjálfafélagi Íslands auk skólastjóra Digranesskóla og landslagsarkitekts. Auk faghópsins og höfunda einstakra kafla áttu fjölmargir aðrir þátt í gerð handbókarinnar í heild eða að hluta.

Fyrst um sinn býðst grunnskólum að panta 1-2 eintök af handbókinni og þá án endurgjalds (greiða þarf póstkostnað). Handbókin er auk þess öllum aðgengileg á rafrænu formi (pdf 5Mb) hér á vef Lýðheilsustöðvar.

Pöntunarsíða

Deildu með öðrum

Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica