Sími : 5 800 900
Hreyfing

Lífshlaupið hefst 3. febrúar

28.1.2010

lifshlaupid-merkiLífshlaupið

hefst 3. febrúar og eru landsmenn hvattir til að huga að daglegri hreyfingu sinni og taka þátt.

Lífshlaupið er hvatningarverkefni ÍSÍ og er tilgangur þess er að hvetja landsmenn til að huga að daglegri hreyfingu sinni og hreyfa sig í samræmi við ráðleggingar Lýðheilsustöðvar um hreyfingu.

Lýðheilsustöð er einn af samstarfsaðilum Lífshlaupsins ásamt heilbrigðisráðuneytinu, mennta- og menningarmálaráðuneytinu og fleirum. Að þessu sinni mun hvatningarleikur Lífshlaupsins fyrir vinnustaði og grunnskóla fara fram dagana 3. - 23. febrúar og hvetur Lýðheilsustöð að sjálfsögðu alla til þátttöku.

Verkefnið skiptist í þrjá hluta:

1) Einstaklingsleik þar sem hver og einn skráir inn daglega hreyfingu sína allan ársins hring. Viðurkenningar eru veittar þegar viðkomandi hefur náð að hreyfa sig í samræmi við ráðleggingar í tiltekinn fjölda daga, brons (42 dagar), silfur (84 dagar) eða gullmerki (252 dagar).

2) Hvatningarleik á vinnustöðum (þ.m.t. í framhaldsskólum og háskólum) fyrir 16 ára og eldri

3) Hvatningarleik í grunnskólum fyrir 15 ára og yngri.

 

Nánari upplýsingar er að finna á vefsíðu Lífshlaupsins.

 

Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica