Sími : 5 800 900
Hreyfing

Göngum í skólann og leiksskólann

7.9.2009

foreldri_2008Lýheilsustöð, ásamt fleirum, hleypti af stokkunum átakinu Göngum í skólann árið 2007 en nú er framkvæmd þess í höndum ÍSÍ. Í haust fer verkefnið formlega af stað í Flóaskóla þann 9. september. Gaman að geta þess að í Reykjavík er nú að hefjast Labbað í leikskólann, sem nokkrir aðilar standa að. Foreldrar og aðrir eru hvattir til góðrar þátttöku í þessum ágætu átaksverkefnum, en þau stuðla að heilsusamlegri lifnaðarháttum, öruggari umferð og draga úr mengun.

Alþjóðlega verkefnið Göngum í skólann hófst árið 2007 og árlega bætast fleiri skólar í hópinn sem taka þátt í verkefninu. Í haust verður það formlega sett hér á landi miðvikudaginn 9. september kl. 10.00 í Flóaskóla. Fjölmargir skólar hafa látið vita af þátttöku 2009 en misjafnt er á milli skóla hvað gert er í tengslum við verkefnið.

Lesið meira á vefsíðu Göngum í skólann

Labbað í leikskólann

Börn á göngu_vid_gangbraut. smellið á mynd til að stækkaSamtök um bíllausan lífsstíl og Börnin okkar, samtök foreldrafélaga leikskóla í Reykjavík, standa fyrir átakinu Labbað í leikskólann dagana 14. - 18. september í Reykjavík. Hugmyndin að átakinu kom upp síðasta vetur, þegar fréttir um svifryksmengun voru hvað tíðastar í fjölmiðlum landsins. Tilgangurinn er að hvetja foreldra og forráðamenn til þess að ganga eða hjóla með börnunum sínum í leikskólann í stað þess að aka þangað á bíl. Þannig má draga úr mengun og umferð í nágrenni leikskóla, foreldrar og börn fá fleiri samverustundir og ljómandi góða hreyfingu í kaupbæti. Átakið fer þannig fram að hver leikskóli skráir sig á labbad.i.leikskolann@gmail.com

Sögur og myndir frá átakinu verða birtar á heimasíðu samtakanna, auk þess sem þar verður að finna lista yfir alla leikskóla sem taka þátt. Að loknu átakinu fá allir leikskólar send viðurkenningarskjöl frá samtökunum. Nánari upplýsingar gefur Ólöf í síma 868-8590



Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica