Hjólað í vinnuna 6. - 26. maí
Hvatningarverkefni ÍSÍ, Hjólað í vinnuna, stendur yfir dagana 6.-26. maí n.k. Tilvalið er að nýta verkefnið sem stuðning við að taka upp heilsusamlegar ferðavenjur og efla um leið liðsandann á vinnustaðnum. Það verndar og bætir heilsuna að hreyfa sig daglega, eins og fram kemur í riti Lýðheilsustöðvar Ráðleggingar um hreyfingu, og stöðin hvetur því sem flesta til að fara ferða sinna á hjóli eða tveimur jafnfljótum á meðan á verkefninu stendur - og auðvitað helst sem oftast allan ársins hring.
Hvatningarverkefni ÍSÍ, Hjólað í vinnuna, stendur yfir dagana 6.-26. maí n.k. Tilvalið er að nýta verkefnið sem stuðning við að taka upp heilsusamlegar ferðavenjur og efla um leið liðsandann á vinnustaðnum. Það verndar og bætir heilsuna að hreyfa sig daglega, og Lýðheilsustöð hvetur sem flesta til að fara ferða sinna á hjóli eða tveimur jafnfljótum sem oftast allan ársins hring.
Meginmarkmið Lýðheilsustöðvar með útgáfu Ráðlegginga um hreyfingu er að þær verði hvatning til þess að sem flestir landsmenn hreyfi sig nóg heilsunnar vegna. Ein einfaldasta leiðin til að auka hreyfingu í daglegu lífi er að velja ferðamáta sem felur í sér hreyfingu, s.s. hjóla eða ganga á milli áfangastaða. Með því má á einfaldan hátt hreyfa sig í samræmi við ráðleggingar og njóta þess ávinnings sem því fylgir. Auk þess sem ferðatíminn er nýttur til ókeypis heilsuræktar er t.d. hægt að spara kostnað vegna einkabílsins, draga úr umferðarþunga og stuðla að heilnæmara lofti.
Hjólum í vinnuna
Tilvalið er að nýta hvatningarverkefni ÍSÍ, Hjólað í vinnuna 6. - 26. maí n.k. sem stuðning við að taka upp heilsusamlegar ferðavenjur og hvetja samstarfsfólkið til að gera slíkt hið sama. Lýðheilsustöð er einn af samstarfsaðilum ÍSÍ um verkefnið og hvetur alla til að skrá sig og taka þátt.
Nánari upplýsingar og skráning eru á vefsíðunni: http://www.hjoladivinnuna.is/.
Tengt efni:
Ráðleggingar um heilsueflingu á vinnustöðum
Dreifðu um vefinn
