Sími : 5 800 900
Hreyfing

LÍfshlaupið hefst - starfsmanni Lýðheilsustöðvar veitt gullmerki hlaupsins

29.1.2009

Lífshlaupið - smellið á merki til að opna vefsíðu hlaupsins.Lífshlaupið hefst 4. febrúar n.k. en það er hvatningarverkefni ÍSÍ sem hleypt var af stokkunum á síðasta ári og Lýðheilsustöð er samstarfsaðili að. Tilgangurinn er að hvetja alla landsmenn til að huga að daglegri hreyfingu sinni og segja má að það hafi tekist svo um munar hjá einum starfsmanni Lýðheilsustöðvar því hann hlaut í vikunni gullmerki Lífshlaupsins fyrir góðan árangur.

Jóhann Þór Halldórsson og Jóna Hildur Bjarnadóttir, sviðsstjóri almenningsíþróttasviðs ÍSÍ.Í Lífshlaupinu er fólki ráðlagt að nýta hvert tækifæri sem gefst til hreyfingar og að hreyfa sig í samræmi við ráðleggingar Lýðheilsustöðvar um hreyfingu. Lýðheilsustöð er, ásamt ráðuneytum heilbrigðis- og menntamála og fleirum, samstarfsaðili ÍSÍ að Lífshlaupinu. Því var það sérstaklega ánægjulegt þegar skrifstofustjóri Lýðheilsustöðvar, Jóhann Þór Halldórsson, náði nýlega þeim merka áfanga að vinna sér inn gullmerki í einstaklingsleiknum. Það var Jóna Hildur Bjarnadóttir, sviðsstjóri almenningsíþróttasviðs ÍSÍ sem afhenti Jóhanni gullmerkið.

Að þessu sinni mun hvatningarleikur Lífshlaupsins fyrir vinnustaði og grunnskóla fara fram dagana 4. - 24. febrúar og hvetur Lýðheilsustöð að sjálfsögðu alla til þátttöku.

Lífshlaupið skiptist í þrjá hluta:

1) Einstaklingsleik þar sem hver og einn skráir sína daglega hreyfingu allan ársins hring. Viðurkenningar eru veittar þegar viðkomandi hefur náð að hreyfa sig í samræmi við ráðleggingar í tiltekinn fjölda daga:

brons = 42 dagar
silfur = 84 dagar
gullmerki = 252 dagar.

2) Hvatningarleik á vinnustöðum, þar með talið í framhaldsskólum og háskólum, fyrir 16 ára og eldri

3) Hvatningarleik í grunnskólum, fyrir 15 ára og yngri.

Frekari upplýsingar er að finna á heimasíðu Lífshlaupsins http://lifshlaupid.is/

 



Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica