Hreyfum okkur í minnst 30/60 mínútur á dag!
Heilsunnar vegna – ekki síst geðheilsunnar – er fullorðnum ráðlagt að hreyfa sig í minnst 30 mínútur á dag og börnum 60 mínútur. En fara Íslendingar almennt eftir þessum ráleggingum? Á hádegisverðarfundi fimmtudaginn 25. september verður kynnt formlega ný útgáfa Lýðheilsustöðvar, Ráðleggingar um hreyfingu, og flutt forvitnileg erindi um ýmislegt sem viðkemur hreyfingu Íslendinga.
Fundurinn er haldinn í kennslusal geðdeildar Landspítalans við Hringbraut, 3. hæð, og hefst hann kl. 12 og stendur til 13:30. Staðsetningin var m.a. valin til að leggja áherslu á gildi hreyfingar jafnt fyrir andlega sem líkamlega heilsu.
Öllum er heimill aðgangur á meðan húsrúm leyfir en skráning fer fram hjá: www.lydheilsustod.is/skraning (Vinsamlega skrifið hreyfiráðleggingar í stjörnumerkta reitinn)
Dagskrá hádegisverðarfundar
Fimmtudagurinn 25. september, kl. 12-13:30
Boðið upp á léttar veitingar
- Ávarp frá heilbrigðisráðuneytinu
- Um Ráðleggingar um hreyfingu
Gígja Gunnarsdóttir, verkefnastjóri hreyfingar hjá Lýðheilsustöð - Afhending verðlauna í Lífshlaupinu
- Hreyfing og heilsa
Jan Triebel yfirlæknir HNLFÍ, Læknafélagi Íslands - Hreyfing Íslendinga
Þórarinn Sveinsson dósent sjúkraþjálfunarskor læknadeildar HÍ
(Erlingur Jóhannesson, sem til stóð að yrði með Þórarni, kemst því miður ekki.) - Hvatning til hreyfingar, mikilvægi heilbrigðisstarfsfólks
Anna B. Aradóttir yfirhjúkrunarfræðingur, Landlæknisembættinu - Hreyfing er geðrækt
Martha Erntsdóttir, sjúkraþjálfari hjá Landspítala-háskólasjúkrahúsi
Fundarstjóri er Þórólfur Þórlindsson, forstjóri Lýðheilsustöðvar.
Um Ráðleggingar um hreyfingu
Með útgáfunni eru nú í fyrsta sinn að koma út hér á landi ráðleggingar um hreyfingu í ýtarlegri mynd. Lýðheilsustöð gefur ráðleggingarnar út en áður hafa ráðleggingar um hreyfingu meðal annars verið hluti af ráðleggingum um mataræði og næringarefni. Ráðleggingarnar segja til um hreyfingu til heilsubótar fyrir fólk á öllum aldri sem og hreyfingu barnshafandi kvenna.
Ráðleggingum um hreyfingu er ætlað að stuðla að því að sem flestir hreyfi sig nóg til að vernda og bæta heilsuna. Einnig eru þær ætlaðar fagfólki og öðrum til að auka þekkingu á hreyfingu, skapa jákvætt viðhorf til hreyfingar, auka hæfni til að greina hreyfivenjur og gera áætlanir um meiri hreyfingu eftir þörfum.
Allir fundargestir fá afhent eintak af ráðleggingunum en einnig er hægt að skoða og panta Ráðleggingar um hreyfingu á vef Lýðheilsustöðvar undir Útgáfur; krækja beina leið er hér.
Nánari upplýsingar veitir:
Gígja Gunnarsdóttir, verkefnisstjóri hreyfingar, Lýðheilsustöð
Sími: 5 800 923 - gigja@lydheilsustod.is
