Sími : 5 800 900
Hreyfing

Skólatöskudagar Iðjuþjálfafélags Íslands

28.9.2006

Dagana 25.-29. september stendur Iðjuþjálfafélag Íslands fyrir skólatöskudögum víðs vegar um landið. Skólatöskudagar eru haldnir af hálfu iðjuþjálfa um allan heim um þessar mundir en hugmyndin kemur upphaflega frá Bandaríkjunum. Alls taka 45 íslenskir iðjuþjálfar þátt í verkefninu og munu þeir heimsækja um sextíu grunnskóla víðsvegar um landið.

retta_leidin_lettaTilgangur dagana er að fræða nemendur, foreldra þeirra og kennara um rétta notkun á skólatöskum. Iðjuþjálfar munu heimsækja grunnskólabekki og bjóða nemendum upp á að vigta skólatöskur þeirra og nemendurna sjálfa til að reikna út hvort skólataskan sé af æskilegri þyngd. Auk þess að veita almenna fræðslu um líkamsbeitingu. Rannsóknir sýna fram á að stoðkerfisvandi barna og ungmenna sé vaxandi vandamál í samfélaginu og hefur þetta framtak forvarnargildi fyrir betri líðan barna og ungmenna. Börnin fá í hendurnar leiðbeiningar um hvernig taskan á að vera stillt, hvernig best sé að raða í hana og hvaða þætti er mikilvægt að horfa á þegar ný taska er keypt.

Leiðbeiningar frá iðjuþjálfum varðandi líkamsstöðu og skólatöskur.

Iðjuþjálfafélag Íslands, sem er þrjátíu ára um þessar mundir, ákvað með svo öflugu framtaki að upplýsa nemendur og fjölskyldur þeirra um mikilvægi forvarna gagnvart heilbrigði. Margir iðjuþjálfar starfa í tengslum við skóla hér á landi þó sú vinna sé öflugust utan höfuðborgarsvæðisins.

Iðjuþjálfar starfa í skólum til að styðja nemendur í daglegum athöfnum. Markmið iðjuþjálfa er samhljóma markmiðum kennara að því leyti að vinna að farsælli þátttöku nemenda í grunnskólastarfinu. Í skólum aðstoða iðjuþjálfar börn með víðtæka færnivanda svo sem varðandi skriftarfærni, þroska og hegðun. Iðjuþjálfar vinna að því að styrkja einstaklinga í daglegum athöfnum svo frammistaða þeirra og þátttaka sé með sem bestu móti í nútíma samfélagi.



Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica