Teygjuhlé fyrir börn og unglinga
Teygjuhlé fyrir börn og unglinga, er tölvuforrit sem er ætlað að koma í veg fyrir þróun álagsmeiðsla hjá börnum og unglingum vegna tölvunotkunar. Forritið er bandarískt að uppruna og er Ísland fyrsta landið sem fær forritið á öðru tungumáli en ensku. Formlega var opnað fyrir notkun á forritinu í dag og spreyttu nemendur í 4. bekk Digranesskóla sig á æfingunum. Hér eftir býðst því öllum íslenskum börnum og unglingum að nota forritið án endurgjalds og er það hugsað til notkunar í skólum og á heimilum.
Haukur Haraldsson sviðsstjóri á Lýðheilsustöð afhenti Magneu Einarsdóttur skólastjóra
Digranesskóla formlega forritið til notkunar og í framhaldinu skýrði Gígja Gunnarsdóttir, verkefnisstjóri hreyfingar hjá Lýðheilsustöð, í stuttu máli frá virkni þess og svaraði ýmsum góðum spurningum sem komu frá nemendum.
Það var fyrir tilstuðlan eins af höfundum forritsins, Karen Jacobs prófessor við Bostonháskóla, sem Lýðheilsustöð bauðst að þýða og staðfæra forritið og var hún viðstödd opnun þess í dag. Karen er iðjuþjálfi og hefur meðal sinnt kennslu við iðjuþjálfadeild Háskólans á Akureyri

Fulltrúar Iðjuþjálfafélags Íslands voru einnig viðstaddir opnunina en félagið prófaði forritið og aðstoðaði við þýðingu á faglegum hluta þess.
Í tilefni af Skólatöskudögum sem iðjuþjálfar um allan heim standa fyrir um þessar mundir gaf Iðjuþjálfafélag Íslands nemendum bókamerki að gjöf en auk þess að standa fyrir slíkum dögum hér á landi heldur félagið nú upp á 30 ára afmæli sitt.
