Sími : 5 800 900
Hreyfing

Látum hjólin snúast – Ráðstefna um heilbrigðar samgöngur 11. maí

4.5.2006

Lýðheilsustöð, Umhverfissvið Reykjavíkur, Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands og SMELLIÐ Á MYNDINA TIL AÐ STÆKKALandssamtök hjólreiðamanna standa fyrir ráðstefnunni Látum hjólin snúast - ráðstefna um heilbrigðar samgöngur á Grand Hótel Reykjavík, fimmtudaginn 11. maí. Ein þeirra spurninga sem leitað verður svara við á ráðstefnunni er: Hvert er heilsufarslegt mikilvægi hjólreiða?

Ráðstefnan stendur frá kl. 13 til 17 fimmtudaginn 11. maí og er öllum opin endurgjaldslaust
- en þátttakendur eru vinsamlegast beðnir að skrá sig hérna:

Skráning á ráðstefnu 

DAGSKRÁ

Smella á myndina til að stækka

Markmiðið ráðstefnunnar er að leita svara við spurningum eins og:

  • Hvert er heilsufarslegt mikilvægi hjólreiða?
  • Hversu margir eru að nota hjólreiðar sem samgöngumáta og hvernig stöndum við miðað við aðrar þjóðir?
  • Hvað er nú þegar verið að gera til að stuðla að auknum hjólreiðum á Íslandi?
  • Er mögulegt að auka hjólreiðar á Íslandi?
  • Hvernig er það mögulegt?

Í lok ráðstefnunnar verða pallborðsumræður þar sem öllum þingflokkum er boðið að svara spurningunni: ,,Er einkabíllinn búinn að sigra?"

Erlendir fyrirlesarar

Dr. Carlos Dora er læknir og starfar hjá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni (WHO). Þar hefur hann m.a. stýrt mati á hvernig stefnumótun í samgöngu-, orku- og landbúnaðarmálum hefur áhrif á heilbrigði. Áður starfaði dr. Carlos Dora við faraldsfræðirannsóknir hjá London School of Hygiene.

Thomas Krag er með meistaragráðu í efnaverkfræði og þekktur ráðgjafi varðandi hjólreiðar. Thomas hefur m.a. unnið með dönskum stjórnvöldum, evrópsku hjólreiðasamtökunum (ECF) og var á tímabili framkvæmdastjóri dönsku hjólreiðasamtakanna.

Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica