Sími : 5 800 900
Hreyfing

Hjólað í vinnuna hófst í dag

2.5.2005

Það var mikið um að vera í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í morgun en þá var átaksverkefnið ,,Hjólað í vinnuna" sett af stað með pompi og prakt. Ellert B. Schram, forseti ÍSÍ, Steinunn Valdís Óskarsdóttir, borgarstjóri, Ásgeir Eiríksson, framkvæmdastjóri Strætó BS, og Jón Kristjánsson, heilbrigðisráðherra, héldu stuttar ræður en Anna Elísabet Ólafsdóttir, forstjóri Lýðheilsustöðvar, endaði fundinn með því að stjórna hópsöng þar sem sungið var ,,Hjólalagið 2005" og var vel tekið undir.

Í ár er metþátttaka í verkefninu en í morgun höfðu 220 vinnustaðir um allt land skráð 359 lið til leiks. Tilgangur verkefnisins er að fá fólk til að hreyfa sig en það þarf ekki endilega að hjóla, einnig má nota strætó eða eins og stendur í fréttatilkynningu verkefnisins:
,,Meginmarkmið „Hjólað í vinnuna“ er að vekja athygli á hjólreiðum sem heilsusamlegum, umhverfisvænum og hagkvæmum samgöngumáta. Allir þeir sem nýta eigin orku til að ferðast til og frá vinnu eru gjaldgengir þátttakendur þ.e. hjóla, skokka, ganga, nota línuskauta o.s.frv. Þeir sem taka strætó geta einnig tekið þátt en þá er skráð sú vegalengd sem gengin er til og frá stoppistöð.“

Við hvetjum alla að taka þátt!

Lýðheilsustöð færir svo landsmönnum hressandi lag til að raula á hjólinu á leið í vinnu - textinn er eftir Unni Halldórsdóttur.

Hjólað í vinnuna að hætti Lýðheilsustöðvar
2.-13 maí 2005

Lag: Undir bláhimni texti UH

Það er hressandi að hjóla í vinnu,

hreyfa skrokkinn og liðka í senn.

Og í buddunni bata þú finnur

því að bensínið hækkar víst enn.

Fyrir umhverfi umhyggju berðu

og þinn útblástur skaðar ei neitt.

Allt í nærmynd í náttúru sérðu

og nýtur lífsins, já, alveg úti í eitt.

Þó á hjóli þú ferðist í friði

framtaksemin á Netið er skráð,

því að nú er sko Ísland á iði,

út og suður er baráttan háð.

Hvort sem liðið þitt sigurinn sækir

er að sjálfsögðu ágóðinn vís

Þú með hjólreiðum heilsuna rækir,

og hlýtur veglegan lífstíðarprís.

Hjólað í vinnuna 2

Ellert B. Schram, Anna Elísabet Ólafsdóttir, Jón Kristjánsson, Steinunn V. Óskarsdóttir og Ásgeir Eiríksson.

Hjólað í vinnuna 3

Steinunn V. Óskarsdóttir, borgarstjóri, og Ásgeir Eiríksson,
framkvæmdastjóri Strætó BS, við hjólin.


Smellið á myndina til að stækka

Hjólahópur Lýðheilsustöðvar 2005, í einkennisklæðnaði.

Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica