Beint í leiðarkerfi vefsins.
Beinþynning er lýðheilsuvandi sem herjar á fólk um allan heim og er talið að þriðja hver kona og fimmti hver karl brotni af hennar völdum. Í dag, 20. október 2008, er alþjóðlegur beinverndardagur og er þá m.a. minnt á að hægt er að minnka hættu á beinþynningu og brotum af hennar völdum með ýmsu móti.
Lesa meira
Heilsunnar vegna – ekki síst geðheilsunnar – er fullorðnum ráðlagt að hreyfa sig í minnst 30 mínútur á dag og börnum 60 mínútur. En fara Íslendingar almennt eftir þessum ráleggingum? Á hádegisverðarfundi fimmtudaginn 25. september verður kynnt formlega ný útgáfa Lýðheilsustöðvar, Ráðleggingar um hreyfingu, og flutt forvitnileg erindi um ýmislegt sem viðkemur hreyfingu Íslendinga.
Í fyrsta sinn koma nú út hér á landi Ráðleggingar um hreyfingu í ýtarlegri mynd. Lýðheilsustöð gefur ráðleggingarnar út en áður hafa ráðleggingar um hreyfingu meðal annars verið hluti af ráðleggingum um mataræði og næringarefni.
Lesa meira