Nú hjólum við í vinnuna
Lýðheilsustöð er í samvinnu við Umhverfissvið Reykjavíkurborgar og Umferðarstofu um gerð auglýsinganna en sýningar á þeim eru nýhafnar. Út frá sjónarhóli reiðhjólanna sjálfra eru eigendur þeirra minntir, á léttan hátt, á að það er auðveldara en þeir halda að hjóla - og hjólin vilja gjarnan komast í burt frá hjólageymslunni. Einnig hafa verið gerðar útvarpsauglýsingar þar sem hjólin tala til eigendanna og minna á sig.
Sjóvarpsauglýsingar
| Hjólaauglýsing 1 | Hjólaauglýsing 2 | Hjólaauglýsing 3 |
|---|---|---|
![]() |
![]() |
![]() |
Útvarpsauglýsingar
| Nr. 1 | Nr. 2 | Nr. 3 | Nr. 4 | Nr. 5 | |
|---|---|---|---|---|---|
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
|
Hjólað í vinnuna
Þátttakan í ,,Hjólað í vinnuna" átakinu er stöðugt að aukast og væntanlega er átakið komið til að vera. Þess er auðvitað vænst að sem lengst og mest verði hjólað í ár og að sem allra flest fyrirtæki taki þátt en ekki síður að átakið verði til þess að opna augu sem flestra fyrir því að það er minna mál en þeir halda að hjóla meira - og að þeir geri þar af leiðandi meira af því.
Daglega eru settar nýjar fréttir á heimasíðu Hjólað í vinnuna og því auðvelt að fylgjast með hvernig gengur.
Myndin hér á síðunni er að hjólahópi Lýðheilsustöðvar, 2005.




