Sími : 5 800 900

Hreyfing

Skólatöskudagar Iðjuþjálfafélags Íslands - 28.9.2006

Dagana 25.-29. september stendur Iðjuþjálfafélag Íslands fyrir skólatöskudögum víðs vegar um landið. Skólatöskudagar eru haldnir af hálfu iðjuþjálfa um allan heim um þessar mundir en hugmyndin kemur upphaflega frá Bandaríkjunum. Alls taka 45 íslenskir iðjuþjálfar þátt í verkefninu og munu þeir heimsækja um sextíu grunnskóla víðsvegar um landið. Lesa meira
 

Teygjuhlé fyrir börn og unglinga - 27.9.2006

Nýtt hléæfingaforrit, Teygjuhlé fyrir börn og unglinga, var kynnt í Digranesskóla 27. september. Forritið minnir fólk á að hvíla sig á tölvunni og gera æfingar með reglulegu millibili. Það er einkum ætlað börnum og unglingum, en æfingarnar henta þó öllum aldurshópum. Forritið er ókeypis til niðurhals hérna á vef Lýðheilsustöðvar. Lesa meira
 

Hreyfing fyrir alla - tilraunaverkefni - 21.9.2006

Undirbúningur er hafinn vegna verkefnisins Hreyfing fyrir alla, sem er tilraunaverkefni um að fjölga skipulögðum hreyfitilboðum fyrir fullorðna og eldra fólk með því að efla almenningsíþróttadeildir íþróttafélaga. Lesa meira
 

,,Látum hjólin snúast" - um ráðstefnu sem haldin var um hjólreiðar - 30.6.2006

Sumarið er tími hjólreiðanna og þá drífa margir hjólin sín úr geymslunni, þurrka af þeim rykið, pumpa í dekkin og skella sér í góða hjólreiðatúra. Margir nota hjólið líka sem sitt aðalsamgöngutæki og hjóla í og úr vinnu. Í tilefni af fyrirtækjaleik ÍSÍ, Hjólað í vinnuna, sem haldinn var í maí, stóðu Lýðheilsustöð, Umhverfissvið Reykjavíkurborgar, Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands og Landssamtök Hjólreiðamanna fyrir ráðstefnu um heilbrigðar samgöngur sem bar yfirskriftina ,,Látum hjólin snúast”. Lesa meira
 

Látum hjólin snúast – Ráðstefna um heilbrigðar samgöngur 11. maí - 4.5.2006

Lýðheilsustöð, Umhverfissvið Reykjavíkur, Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands og SMELLIÐ Á MYNDINA TIL AÐ STÆKKALandssamtök hjólreiðamanna standa fyrir ráðstefnunni Látum hjólin snúast - ráðstefna um heilbrigðar samgöngur á Grand Hótel Reykjavík, fimmtudaginn 11. maí. Ein þeirra spurninga sem leitað verður svara við á ráðstefnunni er: Hvert er heilsufarslegt mikilvægi hjólreiða? Lesa meira
 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica