Sími : 5 800 900
Geðrækt

Geðheilbrigði barna – fræðsluefni

14.1.2010

Smella til að sækja pdf eintak af bæklingnum

Út eru komnir tveir Smella til að sækja pdf eintak af bæklingnumfræðslubæklingar um geðheilbrigði barna, annar ætlaður unglingum og hinn aðstandendum barna og unglinga. Bæklingarnir eru unnir á vegum Barna- og unglingageðdeildar Landspítala (BUGL) í samstarfi við Lýðheilsustöð og Landlæknisembættið. Þeir verða kynntir í fyrsta sinn á árlegri ráðstefnu BUGL ,,Snemma beygist krókurinn - Bjargráð og þjónusta í nærumhverfi" sem haldinn er föstudaginn 15. janúar, kl. 08.15-16.15, í Þróttarsalnum, Engjavegi 7 í Laugardal.

Ákveðið var að ráðast í gerð fræðslubæklinganna í ljósi þess að ekkert efni var til á íslensku um þetta efni en þörfin fyrir fræðslu sem þessa er mjög brýn. Meðal þess sem fjallað er um er: hvað er geðheilsa, hvað truflar geðheilsu, helstu merki um geðheilsuvandamál, hvernig nálgast má aðstoð ef vanda ber að höndum, og nokkur góð ráð sem styrkt geta geðheilsuna

Bæklingurinn fyrir unga fólkið brýst saman þar til hann er svo smár að auðvelt er að setja hann í vasann eða töskuna en sá fyrir aðstandendur er í hefðbundnara útliti.

Hægt er að panta bæklingana hér á vefsíðunni eða skoða þá á skjánum og prenta út í pdf formi.

Unglingabæklingurinn á pdf formi er hér
Foreldrabæklingurinn á pdf formi er hér

Deildu með öðrum

Dreifðu um vefinn

Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica