Alþjóðageðheilbrigðisdagurinn 10. október
10. október ár hvert er haldið upp á alþjóðageðheilbrigðisdaginn með ýmsum viðburðum tengdum málefnum geðheilbrigðis. Yfirskrift dagsins í ár er: Öflugri og aðgengilegri geðheilbrigðisþjónusta. Í tilefni af deginum er efnt til hátíðarhalda í Mjódd í Breiðholti laugardaginn 10. október og hefst dagskráin kl. 13. Haldið verður upp á daginn í göngugötunni í Mjódd og í húsakynnum Hugarafls að Álfabakka 16, frá kl.13-16:30. Dagskráin byrjar með ávarpi heilbrigðisráðherra og síðan verður boðið up á fjölbreytt skemmti- og tónlistaratriði fyrir börn og fullorðna.
Herdís Benediktsdóttir, og tvær söguhetjanna, munu kynna nýútkomna bók Herdísar ,,Geðveikar batasögur". Um tónlistaratriði sjá unglingahljómsveitin GÁVA, Fjölsmiðjan, Geir Ólafs og Ingó úr Veðurguðunum. Fjölmörg félög og samtök verða með kynningarbása í göngugötunni, þar sem gestir geta fengið upplýsingar er varða geðheilbrigðismál og ýmis úrræði. Boðið verður upp á veitingar, vöfflur, kaffi o.fl. á geðveikt góðu verði. Einnig blöðrur fyrir börnin.
Lýðheilsustöð hefur í áranna rás komið að alþjóðageðheilbrigðisdeginum á Íslandi en nánari upplýsingar eru á vef Alþjóðageðheilbrigðisdagsins: 10okt.com
