Sími : 5 800 900
Geðrækt

Heilsuvika og Geðveikir dagar

21.9.2009

Geðorð á vegg í Vogunum. smellið á mynd til að stækkaÞað fer í vöxt að sveitarfélög standi fyrir heilsuátaki í ákveðinn tíma og hvetji þá íbúa til að taka þátt í heilsueflandi atburðum. Oftar en ekki er leitað til Lýðheilsustöðvar með fræðsluefni og fagnar stöðin slíkum tækifærum til að koma að eflingu heilsu í sveitarfélögum. Nú stendur yfir heilsu- og forvarnavika í Reykjanesbæ og meðal atburða eru Geðveikir dagar þar sem geðorðin 10 eru í hávegum höfð.

Geðorðin 10 á átta tungumálum. smella á mynd til að stækka.Geðorðin 10 eru núorðið landsþekkt en á sínum tíma voru ísskápaseglar með orðunum send til allra heimila í landinu. Síðan hafa geðorðin verið nýtt í heilsueflingarstarfi á ýmsan máta og komið út með ýmsu sniði, m.a. þýdd á algengustu tungumál sem töluð eru í landinu.

gedveikir_dagar,_logoÍ Reykjanesbæ er það Björgin, Geðræktarmiðstöð Suðurnesja, sem stendur fyrir Geðveikum dögum 22. - 25. september. Liður þar í er að gera geðorðin sýnileg víða um sveitarfélagið. Á Geðveikum dögum á síðasta ári voru geðorðin notuð í geðræktargöngu og plöstuð geðorð voru bundin á ljósastaura bæjarins. Í ár eru stök geðorð máluð á veggi víðsvegar um bæinn og í vinnslu er að þau verði sett á strætó.

Meira um heilsu- og forvarnaviku Reykjanesbæjar

Geðorð 1, Björgin. Smellið á mynd til að stækka Geðorð, Björgin. smella á mynd til að stækka




Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica