Hlúðu að því sem þér þykir vænt um - Geðheilbrigðisdagurinn 2008 -
Alþjóða geðheilbrigðisdagurinn er haldinn 10. október ár hvert. Í ár er yfirskrift dagsins á Íslandi: „Hlúðu að því sem þér þykir vænt um“ og verður athyglinni einkum beint að ungu fólki. Viðamikil og skemmtileg dagskrá verður í tilefni af deginum og stendur hún yfir frá 6. - 10. október. Að auki hefur verið opnuð sérstök heimasíða geðræktardagsins: www.10okt.com
Hvað er geðheilbrigðisdagurinn?
Dagurinn er eini sameiginlegi vettvangur allra þeirra sem starfa að geðheilbrigðismálum á landinu. Rannsóknir gefa til kynna að fjórði hver einstaklingur fái geðsjúkdóm einhvern tíma á lífsleiðinni. Algengt er að þetta gerist þegar einstaklingar eru undir miklu álagi, því má leiða að því líkum að hlutfallslega fleiri veikist þegar óvissuástand ríkir, líkt og það sem við búum við í þjóðfélaginu nú.
Þema dagsins: Sameiginleg niðurstaða undirbúningshóps geðheilbrigðisdagsins var að megin áhersla ársins 2008 yrði á geðheilbrigði ungs fólks. Í fyrsta lagi vegna þess að reynslan sýnir að forvarnastarf heppnast best ef nógu fljótt er gripið inn í. Einnig vegna þess að talið er að þarfir þessa hóps og það andlega álag sem hann er undir hafi e.t.v. verið vanmetið.
Yfirskrift dagsins í ár er: ,,Hlúðu að því sem þér þykir vænt um." Þetta er jafnframt annað geðorðið, í röð geðorðanna tíu. Aðstandendur dagsins telja þessi orð eiga vel við um uppbyggilega samveru foreldra og barna. Reynslan og rannsóknir sýna að uppbyggileg samvera gegnir lykilhlutverki í öllu forvarnastarfi.
Dagskrá geðheilbrigðisdagsins: Dagurinn verður haldinn í Perlunni frá kl. 16 - 18 föstudaginn 10. október. Þar verður sambland af skemmtiatriðum og erindum sem tengjast málefninu. Að auki mun formaður velferðarráðs Reykjavíkur, Jórunn Frímannsdóttir, kynna stefnu borgarinnar í geðheilbrigðismálum í kjölfar yfirfærslu málflokksins frá ríki til sveitarfélags. Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, opnar dagskrá dagsins formlega og er hann jafnframt verndari dagsins.
(Nánari upplýsingar um dagskrá eru á: www.10okt.com)
Samhliða dagskrá munu helstu aðilar innan geðheilbrigðismála á Íslandi kynna starfsemi sína. Fulltrúar þeirra verða með kynningarborð í Perlunni og taka á móti fyrirspurnum frá gestum og gangandi.
10okt.com
Geðheilbrigðisdagurinn hefur fengið sína eigin heimasíðu sem var formlega opnuð á blaðamannafundi í Hagaskóla mánudaginn 6. október. Gert er ráð fyrir að vefsíðan verði í framtíðinni byggð upp og þróuð í samstarfi við ungt fólk, með það í huga að sinnt verði þörfum þeirra um geðræktarfræðslu og skipulagningu geðræktarviðburða. Samstarfsaðilar 10okt.com, Samtök íslenskra félagsmiðstöðva (Samfés) og þjónustumiðstöð Vesturbæjar, munu taka þátt í þessarri vinnu. Elín Eyþórsdóttir söngkona, sem tekur þátt í dagskránni 10 október, opnaði síðuna með því að skrá á hana fyrsta viðburðinn í geðræktarátakinu ,,eitt í einu”.
Myndin er tekin á opnuninni og eru þátttakendur í bolum með merki dagsins í ár.
Eitt í einu
Geðræktarvika dagana 6. – 10. okóber: Einbeiting er ein af undirstöðum góðrar geðheilsu. Hún gerir manni kleift að sinna því sem maður er að gera hverju sinni í stað þess að festast í vandamálum fortíðar eða framtíðar. Því hefur verið ákveðið að efna til sérstaks geðræktarátaks í aðdraganda geðheilbrigðisdagsins undir yfirskriftinni Eitt í einu. Áhugasamir geta tekið þátt í átakinu með því að fara inn á heimasíðuna www.10okt.com og skráð sig þar.
Þátttakandi skráir nafn sitt og netfang og lýsir síðan geðræktarverkefni sínu. Valið á verkefni er algjörlega frálst, til dæmis: „Mánudaginn 6. október ætla ég að minnka stressið hjá mér með því að borða morgunmatinn með fjölskyldunni og njóta hans án þess að lesa blöðin og hlusta á útvarpið samtímis.“ Eða „Miðvikudaginn 8. október, ætla ég að njóta þess að vera með fjölskyldunni eftir vinnu og hugsa ekki um vinnuna þegar ég er kominn heim.“
Fræ til framtíðar
Tveir þeirra aðila sem standa að geðheilbrigðisdeginum að þessu sinni hyggjast í kjölfarið efna til sérstaks geðræktarátaks innan sinna vébanda. Hér er annarsvegar um að ræða Samtök Íslenskra félagsmiðstöðva, Samfés, sem rekur rúmlega 100 félagsmiðstöðvar víðsvegar um landið. Hinsvegar er það Vesturgarður, þjónustumiðstöð Vesturbæjar. Ef vel tekst til með uppbyggingu geðræktarverkefnis Vesturgarðs er ekki ólíklegt að ungt fólk annarstaðar í borginni fái að njóta góðs af þeirri vinnu.
Skipuleggjendur
Skipuleggjendur geðheilbrigðisdagsins í ár eru: Barnaverndarstofa, Barna og unglingageðdeild Landsspítalans (BUGL), Geðhjálp, Hugarafl, Klúbburinn Geysir, Landlæknir, Lýðheilsustöð - Geðrækt, Fulltrúi notenda á Geðsviði Landspítalans, Samfés, Umboðsmaður barna, Velferðarsvið Reykjavíkurborgar.
Nánari upplýsingar:
Einar G. Kvaran, verkefnisstjóri í málefnum ungs fólks hjá Geðhjálp, gsm 8477153
Þráinn Sigvaldason, framkvæmdastjóri Samfés gsm 897-5254
Trausti Jónsson, tómstundaráðgjafi hjá Vesturgarði gsm 6647782
