Bókin Velgengni og vellíðan komin á metsölulista
Bókin Velgengni og vellíðan - um geðorðin 10 kom út á vegum Lýðheilsustöðvar í desember sl. Strax í upphafi hlaut hún mjög góðar viðtökur og nú berast þau ánægjulegu tíðindi að bókin sé í 5. sæti yfir söluhæstu fræði- og handbækurnar í Eymundsson, bókaverslun.Bókin fæst í öllum helstu bókaverslunum landsins auk þess sem ætlunin er að dreifa henni í fleiri verslanir, s.s. blómaverslanir, þar sem markmiðið er að sem auðveldast sé fyrir alla áhugasama að nálgast hana. Í sama augnarmiði er verði hennar stillt mjög í hóf.
Einnig er hægt að kaupa bókina í gegnum netverslun Eymundsson.
Lesa meira um bókina. (Tengill opnast í nýjum glugga).
Frétt um útkomu bókarinnar. (Tengill opnast í nýjum glugga):
