Sími : 5 800 900
Geðrækt

Geðorðin 10 á átta tungumálum

24.9.2007

Gedraekt-VietNamÍ tilefni af alþjóða geðheilbrigðisdeginum, 10. október, sem að þessu sinni er helgaður geðheilsu í heimi þar sem fólk af mörgum þjóðernum býr saman á einum stað, hefur Lýðheilsustöð látið þýða geðorðin 10 á sex tungumál og eru þau nú til á alls átta tungumálum.

Geðorðin 10 eru nú til á pólsku, serbnesku, rússnesku, tælensku, albönsku, víetnömsku, ensku og svo auðvitað íslensku. Hægt er að prenta allar útgáfur geðorðanna beint af heimasíðunni.

Albanska Pólska Rússneska Serbneska
Geðorðin 10, albanska, smella á mynd til að stækka  Geðorðin 10, pólska. Smella á mynd til að stækka  geðorðin 10, rússneska. Smellið á mynd til að stækka Geðorðin 10, serbneska. Smella á mynd til að stækka
 Tælenska  Víetnamska  Íslenska  Enska
 geðrorðin 10, tælenska. Smellið á mynd til að stækka  Geðorðin 10, víetnamska. Smellið á mynd til að stækka.  geðorðin 10, enska. íslenska  geðorðin 10, enska. Smellið á mynd til að stækka.

Geðorðin á erlendri tungu hafa þegar birst í nýjasta hefti Fólk, tímarits Alþjóða hússins, og munu birtast á næstu dögum í tímaritinu Okkar mál, tímariti Geðhjálpar. Væntanlega einnig á fleiri stöðum, einkum þegar nær dregur 10. október.

Á sínum tíma lét Lýðheilsustöð útbúa segulspjald með geðorðunum 10 og fékk sveitarfélögin í landinu í lið með sér um að senda þau inn á hvert heimili á landinu. Smávegis var framleitt af segulspjöldum með geðorðunum 10 á ensku. Einnig hafa geðorðin komið út í bæklingi á íslensku og ensku og á póstkorti á íslensku. Á haustmánuðum 2005 í tengslum við alþjóða geðheilbrigðisdaginn það ár birtust Geðorðin 10 á öllum strætisvögnum í Reykjavík, eitt geðorð á hverjum vagni, og voru þau á vögnunum í 2 mánuði eða lengur.

Alþjóða geðheilbrigðisdagurinn 10. október

World_Mental_Health,_Smella á mynd til að lesa bæklinginn. Á ýmsan hátt er minnt á mikilvægi geðheilsunnar á alþjóða geðheilbrigðisdeginum og í ár er áherslan á fólk í breyttum heimi, þ.e. heimi þarf sem margs konar menning, tungumál og siðir eru við lýði í einu og sama landinu, og þau áhrif sem þetta getur haft á geðheilbrigði fólks. (,,Mental Health in a Changing World: The Impact of Culture and Diversity”).

Hér á landi standa margir saman að því að gera daginn eftirminnilegan og bæði er létt og skemmtileg dagskrá þann 7. október og ráðstefna 10. október.

Skráning á ráðstefnuna fer fram hjá Geðhjálp en með því að smella hér er hægt að tengjast beint í skráningu.

   

Dagskrá 7. október og 10. október:

Alþjóðlegi Geðheilbrigðisdagurinn 2007
Geðheilsa í breyttum heimi: Áhrif menningar og margbreytileika
Verndari dagsins er Vigdís Finnbogadóttir

Sunnudagurinn 7. Október 

Kl. 11:00 Geðhlaup í Nautólfsvík:
Mæting 10:30 10 km. Tímataka og 2 km skemmtiskokk. Skráning fer fram á staðnum eða í síma 570 1700

Kl. 12:00 Geðsjósund: Hugrakkir kasta af sér spjörunum (þó ekki alveg öllum) og stinga sér til sunds undir handleiðslu Sjósundfélags Íslands.

Kl. 14:00 Opnun myndlistasýningar og kynningar á úrræðum í Perlunni.

Kl. 14:30 Skemmtun í Perlunni:
Kynnir Valgeir Guðjónsson.

Fram koma: Vigdís Finnbogadóttir Regnbogakórinn,tælenskur danshópur, Tríótó, Ljóðamaðurinn Hörður og Magadanshópur. Frummælandi verður Þráinn Bertelsson.

 

Kl. 16:00-18:00 Hraðskákmót í umsjón Hróksins og skákfélags Vinjar. Veglegir vinningar og happadrættisvinningar í boði. Þátttaka ókeypis og öllum heimil.


Kl. 20:30 Við Perluna:
Flugeldasýning: Fordómunum skotið upp.

 

Miðvikudagurinn 10. Október. Kl. 12 – 18. Auglysing_fyrir_ráðstefnu_2007. Smellið á mynd til að stækka.

Þverfagleg ráðstefna „Innflytjendur og geðheilbrigði“. Smellið á auglýsinguna um ráðstefnuna til að lesa dagskrána.  

 

Skráning á ráðstefnu.



Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica