Sími : 5 800 900
Geðrækt

Fulltrúi notenda ráðinn á geðsvið LSH

14.3.2006

Stórt skref til framfara var stigið í málefnum geðsjúkra nú á dögunum þegar fulltrúi notenda á geðsviði var ráðinn á Landspítala háskólasjúkrahús. Tilgangurinn er m.a. að efla notendaþekkingu starfsfólks á geðsviði sjúkrahússins.

Bergþór Grétar Böðvarsson hefur verið ráðinn fulltrúi notenda á geðsviði LSH. Það er nýjung að leita sérstaklega þannig til fyrrverandi notanda þjónustunnar til þess að leggja gott til starfsins og er um að ræða tilraunaverkefni í 6 mánuði.

Tilgangur og markmið með þessu er að efla notendaþekkingu á geðsviði LSH hjá starfsfólki sviðsins, að bæta ímynd og þjónustu geðsviðs LSH, sýna fram á að fyrrverandi notendur eigi fullt erindi í vinnu með fagfólki á geðheilbrigðisstofnun, auka samvinnu við notendur þjónustu geðsviðs LSH og auka formlega samvinnu gæðaráðs geðsviðs við notendur

Sjá nánar á vef Landspítala háskólasjúkrahúss



Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica