Sími : 5 800 900
Geðrækt

Yfir 100 þúsund seglum með Geðorðunum 10 dreift til landsmanna

8.12.2005

Að undanförnu hefur verið að berast inn á heimili landsmanna segulspjald með Geðorðunum 10. Um er að ræða eins konar jólagjöf frá Lýðheilsustöð og sveitarfélögum í landinu. Alls lét Lýðheilsustöð framleiða rúmlega 100.000 segulspjöld.

Geðrækt - segull, smellið á myndina til að stækkaFrá því á Geðræktardeginum 2004, 10. október, hefur verið markviss kynning á Geðorðunum 10 með það að markmiði að sem flestir landsmenn þekki þau og læri að tileikna sér þá lífsspeki sem þar kemur fram. Byrjað var á að gefa út lítinn bækling með Geðorðunum, á íslensku og ensku, og þar er einnig sagt frá Geðræktarkassanum. Einnig var gefið út veggspjald í stærðunum A3 og A4 sem dreift hefur verið víða um land, auk þess sem þau hafa birst sem auglýsingar í prentmiðlum. Átakið var kynnt á geðheilbrigðisráðstefnu í Finnlandi í janúar 2004 og vakti þar talsverða athygli. Frá miðjum september hafa Geðorðin birst á strætisvögnum á höfuðborgarsvæðinu, eitt á hverjum vagni, og á sama tíma hafa einstaklingar, margir þjóðþekktir, skrifað stuttan pistil um eitt Geðorðanna sem birst hafa vikulega í Morgunblaðinu.

Seglarnir

Í vor var sent bréf til allra sveitarfélaga í landinu og þeim boðnir seglar með Geðorðunum til að gefa á hvert heimili í sveitarfélaginu. Lýðheilsustöð sá um að láta framleiða seglana, og þeir eru því sveitarfélögunum að kostnaðarlausu, en þau sjá um dreifinguna. Skemmst er frá því að segja að tilboðinu var tekið fagnandi í nær öllum sveitarfélögum landsins og þar hafa seglarnir verið að berast inn á hvert heimili.

Enn er til nokkuð af seglum og þeir sem ekki hafa fengið hann að gjöf geta pantað hann hér hjá Lýðheilsustöð. Segullinn er einnig til á ensku.

Panta segul.



Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica