Að vera manneskja - fræðsluerindi í Gerðubergi í dag
Grunnhugmynd þessarar fræðslu er hvatning til að taka ábyrgð á eigin heilsu. Farið er í gegnum marga þá þætti sem hver og einn getur sjálfur gert til að hafa áhrif í sínu daglega lífi og sannanlega skipta máli fyrir heilbrigði og vellíðan. Erindin nefnast „Áhrif depurðar á daglegt líf" í umsjá Önnu Maríu Jónsdóttur, geðlæknis „Jafnvægi í daglegu lífi", sem Þórunn Gunnarsdóttir, iðjuþjálfi, flytur, „Áhrif hreyfingar á andlega líðan", sem Arnbjörg Guðmundsdóttir, sjúkraþjálfari, flytur, „Viðmót skapar viðmót", sem Ingibjörg Flygering, félagsráðgjafi, flytur og „Samskipti og félagsfærni", sem Rúnar Andrason, sálfræðingur, flytur.
