Geðorðin 10 á strætisvögnum í Reykjavík
Frá og með 23. september birtast Geðorðin 10 á öllum strætisvögnum í Reykjavík, eitt geðorð á hverjum vagni, og verða geðorðin á vögnunum í einn mánuð.
Lýðheilsustöð-Geðrækt stendur þessa dagana fyrir kynningu á Geðorðunum 10.
Þetta eru tíu setningar sem minna á hvað við getum sjálf gert daglega til að efla geðheilsuna. Geðorðin eru byggð á lýsingu á eiginleikum sem taldir eru einkenna þá sem búa við velgengni í lífinu – og þeir sem tileinka sér að lifa í samræmi við boðskap geðorðanna eru líklegri til að búa við hamingju og velferð í sínu lífi.
Þann 23. september birtust Geðorðin 10 á öllum strætisvögnum í Reykjavík, eitt geðorð á hverjum vagni, og verða þau á vögnunum í einn mánuð. Vegfarendur í borginni fá þarna gott tækifæri til að kynnast þessum ágæta boðskap og vonandi verður það til þess að einhverjir fara að tileinka sér hann.

