Alþjóða geðheilbrigðisdagurinn 10. október og annað geðheilbrigðisstarf
Forsaga þessa samstarfs er að þann 11. apríl sl. undirrituðu Rauði kross Íslands (http://www.redcross.is), Landlæknisembættið-Þjóð gegn þunglyndi (http://www.landlaeknir.is), Geðhjálp (http://www.gedhjalp.is/) og Lýðheilsustöð-geðrækt samkomulag sem gildir til maíloka 2006.
Samkomulagið felur í sér eftirfarandi:
- Námskeið fyrir aðstandendur geðfatlaðra og áhugafólk um geðsjúkdóma í öllum landsfjórðungum.
- Samstarf um málþing eða ráðstefnu um rannsóknir haustið 2005 í tengslum við alþjóða geðheilbrigðisdaginn 10. október.
- Miðlun upplýsinga um þjónustu sem hver og einn veitir og um verkefni sem í gangi eru
Með tilvísan til þriggja ofangreindra liða verður leitast við að efla samvinnu allra þeirra aðila sem koma að geðheilbrigðismálum á Íslandi.
Námskeið
Nú þegar hafa verið haldin 2 vel heppnuð námskeið fyrir aðstandendur geðfatlaða og áhugafólk um geðsjúkdóma á landsbyggðinni, nánar tiltekið á Egilsstöðum og á Ísafirði. Í kjölfar námskeiðanna hafa verið myndaðir sjálfshjálparhópar.
Í tengslum við námskeiðin hefur Sigursteinn Másson, formaður Geðhjálpar, fjallað á opnum fundum um Geðhjálp á landsbyggðinni og valdeflingu fólks með geðröskun.
Næsta námskeið verður haldið á Vesturlandi, þ.e. 3. september í Borgarnesi.
Sjá nánar:
Alþjóða geðheilbrigðisdagurinn 2005 - Ráðstefna 7. október
Andleg og líkamleg heilsa allt æviskeiðið er yfirskrift alþjóða geðheilbrigðisdagsins 2005 („Mental and Physical Health Across the Life Span"). Í fyrra var yfirskriftin Tengslin milli líkamlegrar og andlegrar heilsu („The Relationship Between Physical and Mental Health" ).
Hér má lesa efni frá WHO sem tengist alþjóða geðheilbrigðisdeginum 2005:
http://www.wfmh.org/wmhday2005.htm
Þann 7. október næst komandi verður haldin ráðstefna í samstarfi aðila sem vinna að geðheilbrigðismálum í landinu. Auk aðila ofangreinds samkomulags koma Klúbburinn Geysir (http://www.kgeysir.is), Klúbburinn Strókur, Hugarafl(http://www.hugarafl.is) og Geðsvið Landspítala-háskólasjúkrahúss að skipulagningu ráðstefnunnar.
Fjallað verður meðal annars um stöðuna í geðheilbrigðismálum á Íslandi í dag, kynnt forvarnarverkefni á sviði geðheilsu og velt upp spurningum um hvað megi betur fara ásamt því að kynna áhugaverð úrræði sem reynst hafa vel hér á landi og erlendis.
Meðal þess sem kynnt verður á ráðstefnunni er verkefnið Vinir Zippý eða „Zippy´s Friends“ sem er forvarnarverkefni á sviði geðheilsu fyrir börn (geðrækt fyrir börn) sem er að hefjast hjá Lýðheilsustöð.
Nánar verður greint frá ráðstefnunni dagskrá og skráningu á næstu vikum.
Allar nánari upplýsingar um ráðstefnuna veitir Helga G. Halldórsdóttir, sviðsstjóri innanlandssviðs Rauða kross Íslands helga@redcross.is

