Sími : 5 800 900
Geðrækt

Geðheilsa og offita

11.8.2005

Í 7. tbl. Læknablaðsins, 91. árg. 2005, er áhugaverð umfjöllun Kristins Tómassonar, læknis, um tengsl geðheilsu og offitu. Kristinn bendir þar m.a. á að ekki sé síður mikilvægt að vera vakandi fyrir þeim áhrifum sem það hefur á offeitan einstakling að mæta sífellt neikvæðu viðhorfi frá samferðamönnum sínum,  jafnt á vinnustað sem annars staðar, eins og þeim neikvæðu áhrifum sem offita hefur á líkamann.

LæknablaðiðNeikvæð áhrif offitu á sjálfsmynd og geðheilsu fólks eru margvísleg og Kristinn bendir á að mikilvægt sé að skima þá sem glíma við offitu fyrir geðröskunum, sérstaklega ef hún er mjög mikil. Einnig að fylgjast þurfi með því að þeir sem fá geðmeðferð missi ekki tökin á holdafari sínu í tengslum við meðferðina eða sjúkdóminn.

Lesa greinina.

5. GERÐROÐIÐ
Hreyfðu þig daglega, það léttir lundina.



Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica