„Vinir Zippý“ námsefnið á Íslandi
Geðrækt fyrir börn—það er engin heilsa án geðheilsu
Stýrihópur um verkefnið hér á landi var settur á stofn í byrjun árs 2005 og gengið hefur verið frá samningi um þróunarverkefni til tveggja ára. Umsjón með verkefninu hefur verkefnisstjóri Geðræktar hjá Lýðheilsustöð, Guðrún Guðmundsdóttir. Hún, ásamt kennara, leikskólakennara og skólahjúkrunarfræðingi sem einnig er menntaður kennari, sótti námskeið í júní í höfuðstöðvum „Partnership for Children” í London þar sem kennt var að nota námsefnið.
Verið er að þýða námsefnið á íslensku og þýðingin verður forprófuð í leikskólanum Maríuborg, Ingunnarskóla og nýja grunnskólanum í Norðlingaholti skólaárið 2005-2006 og þeir sem sóttu námskeiðið í London munu kenna námsefnið.
Eftir að þýðingin hefur verið forprófuð og vankantar sniðnir af er stefnt að því að innleiða námsefnið í grunnskóla víða um land haustið 2006, að undangengnu námskeiði fyrir kennara.
Þá er einnig stefnt að því að árangursmeta námsefnið með sömu aðferðum og áður hafa verið notaðar þannig að um alþjóðlegan samanburð geti verið að ræða.
Við þróun og innleiðingu námsefnisins er mikilvægt að allir fagaðilar, sem vinna með börnin í skólum og leikskólum, komi þar að. Þannig næst heildræn nálgun sem leiðir til góðs árangurs.
Þróun á Vinir Zippý hefur verið styrkt með framlögum frá GlaxoSmithKline. (http://www.partnershipforchildren.org.uk/fundraising/fundraising.2.html).
Hugmyndafræði Vinir Zippý
Grundvallarhugmyndafræðin á bak við Vinir Zippý er einföld: Ef hægt er að kenna ungum börnum að takast á við erfiðleika þá ættu þau að vera betur í stakk búin að takast á við vandamál og erfiðleika sem þau standa frammi fyrir á unglingsárunum og síðar á lífsleiðinni.
Námsefnið er byggt í kringum sögur sem nefndar eru „Vinir Zippý“. Zippý er
teiknimyndapersóna, nánar tiltekið skordýr, og vinir hans er hópur af ungum börnum. Í sögunum standa þau frammi fyrir ýmsum aðstæðum sem mörg ung börn þekkja vel og snerta m.a.: vináttu, samskipti, einmannaleika, einelti, að takast á við breytingar s.s. skilnað foreldra, missi og sorg. Sögurnar eru myndskreyttar með björtum og líflegum myndum. Hverri sögu fylgja mismunandi verkefni. Með námsefninu er börnunum kennt að takast á við erfiðleika sem upp kunna að koma í daglegu lífi þeirra, að greina og tala um tilfinningar sínar og að kanna leiðir til að takast á við og leysa tilfinningaleg vandamál. Það kennir börnum ennfremur að aðstoða aðra sem líður illa. Markmiðið er því að efla andlega og tilfinningalega heilsu allra barnanna frekar en að leysa eingöngu vandamál fárra.
Aðferð
Vinir Zippý er kennt í grunnskólum en hefur einnig verið kennt í leikskólum. Kennarar, sem fengið hafa þjálfun, kenna námsefnið eina kennslustund á viku, samtals í 24 vikur. Námsefninu er skipt í 6 undirkafla þar sem í hverjum er fyrir eitt ákveðið efni. Fyrir hvern undirkafla eru ætlaðar 4 kennslustundir. Dæmi: Fyrsti undirkaflinn er um tilfinningar og kennslustundirnar fjórar í tengslum við hann taka á: vanlíðan – vellíðan, reiði eða pirringi, öfund og kvíða. Í upphafi hverrar kennslustundar les kennarinn hluta sögunnar og svo taka börnin virkan þátt í umræðum, með því að teikna eða leikjum tengdu efninu. Vinir Zippý segir börnunum ekki hvað þau eiga að gera, þ.e. að ein lausn á vandanum sé betri en önnur, heldur hvetur námsefnið börnin til sjálfstæðrar hugsunar við úrlausn vandamála.
Rannsóknir hafa sýnt að mjög góður árangur hlýst af þessu námsefni í ólíku menningarumhverfi. Í ljós kom að börnin sem höfðu farið í gegnum námsefnið sýndu greinilega framför í því að takast á við vandamál á jákvæðan hátt („coping abilities“) samanborið við börn sem ekki fóru í gegnum það
Forsagan
Vinir Zippý verkefnið var upphaflega þróað sem sjálfsvígsforvarnarverkefni en því er e.t.v. betur lýst sem forvarnaverkefni á sviði geðheilsu fyrir börn (geðrækt fyrir börn).
Námsefnið, sem ætlað er öllum 6-7 ára börnum, var fyrst gefið út af „Befrienders International“ og prófað í Danmörku og Litháen með góðum árangri. Námsefnið var í upphafi þróað og forprófað í Danmörku á árunum 1998 til 1999. Frekari forprófun og innleiðing fór svo fram í Danmörku og Litháen árin 2000-2001. Sífellt fleiri lönd hafa síðan verið að innleiða námsefnið og má þar nefna Brasilíu, England, Indland, Noreg og fyrirhuguð er innleiðing í Quebec í Kanada og í Baltimore í Bandaríkjunum.
Árið 2002 tók „Partnership for Children“ við verkefninu (http://www.partnershipforchildren.org.uk/index.html).
