Sími : 5 800 900

Geðrækt

Velgengni og vellíðan – veggspjöld komin - 13.1.2011

Geðorð 2: Hlúðu að því sem þér þykir vænt um. Smellið á myndina til að stækka.

Geðorðin 10, sem byggð eru á niðurstöðum rannsókna um hvað einkennir þá sem búa við velgengni og vellíðan í lífinu, hafa náð umtalsverðum vinsældum hér á landi. Lýðheilsustöð gaf út bókina Velgengni og vellíðan - um geðorðin 10 og nú eru komin út veggspjöld með myndum úr þessari fallegu bók.

Lesa meira
 

„Vinir Zippýs“ - Kennarar 122ja grunn- og leikskóla hafa sótt námskeiðin - 20.12.2010

Zippy_Fjarfundur_286_NetstaerdLífsleikninámsefnið Vinir Zippýs eða „Zippy´s friends“ er alþjóðlegt forvarnarverkefni á sviði geðheilsu fyrir ung börn.
Á nýliðnu hausti hafa verið haldin 8 kennaranámskeið fyrir námsefnið á höfuðborgarsvæðinu. Þrjú þessara námskeiða tengdust landsbyggðinni í gegnum fjarfundabúnað og voru Akureyri, Ísafjörður og Grundarfjörður á hinum endanum.

Lesa meira
 

10. október - alþjóðageðheilbrigðisdagurinn - 4.10.2010

Dagskrá alþjóða geðheilbrigðisdagsins 2010. Smellið á mynd til að stækka.

Árlega er 10. október helgaður geðheilbrigðismálum um allan heim. Á Íslandi hefur í áranna rás verið haldið upp á daginn með margvíslegu móti og í ár verður haldið upp á daginn í göngugötunni í Mjódd. Þema ársins er: Geðheilsa og langvinn veikindi: þörf fyrir samfellda og samhæfða þjónustu.

Lesa meira
 

Geðheilbrigði barna – fræðsluefni - 14.1.2010

Smella til að sækja pdf eintak af bæklingnum

Út eru komnir tveir Smella til að sækja pdf eintak af bæklingnumfræðslubæklingar um geðheilbrigði barna, annar ætlaður unglingum og hinn aðstandendum barna og unglinga. Bæklingarnir eru unnir á vegum Barna- og unglingageðdeildar Landspítala (BUGL) í samstarfi við Lýðheilsustöð og Landlæknisembættið. Þeir verða kynntir í fyrsta sinn á árlegri ráðstefnu BUGL ,,Snemma beygist krókurinn - Bjargráð og þjónusta í nærumhverfi" sem haldinn er föstudaginn 15. janúar, kl. 08.15-16.15, í Þróttarsalnum, Engjavegi 7 í Laugardal.

Lesa meira
 

Alþjóðageðheilbrigðisdagurinn 10. október - 5.10.2009

Alþjóðgeðheilbrigðisdagurinn 2009. Smellið á mynd til að stækka10. október ár hvert er haldið upp á alþjóðageðheilbrigðisdaginn með ýmsum viðburðum tengdum málefnum geðheilbrigðis. Yfirskrift dagsins í ár er: Öflugri og aðgengilegri geðheilbrigðisþjónusta. Í tilefni af deginum er efnt til hátíðarhalda í Mjódd í Breiðholti laugardaginn 10. október og hefst dagskráin kl. 13.   Lesa meira
 

Heilsuvika og Geðveikir dagar - 21.9.2009

Geðorð á vegg í Vogunum. smellið á mynd til að stækkaÞað fer í vöxt að sveitarfélög standi fyrir heilsuátaki í ákveðinn tíma og hvetji þá íbúa til að taka þátt í heilsueflandi atburðum. Oftar en ekki er leitað til Lýðheilsustöðvar með fræðsluefni og fagnar stöðin slíkum tækifærum til að koma að eflingu heilsu í sveitarfélögum. Nú stendur yfir heilsu- og forvarnavika í Reykjanesbæ og meðal atburða eru Geðveikir dagar þar sem geðorðin 10 eru í hávegum höfð. Lesa meira
 

Hlúðu að því sem þér þykir vænt um - Geðheilbrigðisdagurinn 2008 - - 7.10.2008

Alþjóða geðheilbrigðisdagurinn er haldinn 10. október ár hvert. Í ár er yfirskrift dagsins á Íslandi: „Hlúðu að því sem þér þykir vænt um“ og verður athyglinni einkum beint að ungu fólki. Viðamikil og skemmtileg dagskrá verður í tilefni af deginum og stendur hún yfir frá 6. - 10. október. Að auki hefur verið opnuð sérstök heimasíða geðræktardagsins: www.10okt.com

Lesa meira
 

Bókin Velgengni og vellíðan komin á metsölulista - 29.2.2008

Velgengni og vellíðan - um geðorðin 10, kápumyndBókin Velgengni og vellíðan - um geðorðin 10 kom út á vegum Lýðheilsustöðvar í desember sl. Strax í upphafi hlaut hún mjög góðar viðtökur og nú berast þau ánægjulegu tíðindi að bókin sé í 5. sæti yfir söluhæstu fræði- og handbækurnar í Eymundsson, bókaverslun. Lesa meira
 

Velgengni og vellíðan - 17.12.2007

Velgengni og vellíðan, smella á mynd til að stækkaLýðheilsustöð kynnir nýútgefna bók sína Velgengni og vellíðan - Um geðorðin 10 í Borgarbókasafninu, Tryggvagötu, í hádeginu í dag og við sama tækifæri tekur heilbrigðisráðherra, Guðlaugur Þór Þórðarson, formlega við eintaki af bókinni. Kynningarfundurinn er öllum opinn. Lesa meira
 

Alþjóða geðheilbrigðisdagurinn er í dag - 10. október - 10.10.2007

Í tilefni dagsins er haldin þverfagleg ráðstefna í Ráðhúsi Reykjavíkur, minningarathöfn Í Hallgrímskirkju og kertafleyting við Tjörnina. Lýðheilsustöð lét þýða geðorðin 10 á 6 tungumál í tilefni af deginum og þeim áherslum sem lagðar eru í ár: alþjóðavæðing og menningarlegur margbreytileiki.   Lesa meira
 

Geðorðin 10 á átta tungumálum - 24.9.2007

Gedraekt-VietNamÍ tilefni af alþjóða geðheilbrigðisdeginum, 10. október, sem að þessu sinni er helgaður geðheilsu í heimi þar sem fólk af mörgum þjóðernum býr saman á einum stað, hefur Lýðheilsustöð látið þýða geðorðin 10 á sex tungumál og eru þau nú til á alls átta tungumálum. Lesa meira
 

Ný hugsun í geðheilbrigðismálum - Ráðstefna 10. október - 9.10.2006

Í tilefni Alþjóða geðheilsbrigðisdagsins 10. október 2006, stendur Lýheilsustöð, ásamt fleiri aðilum, fyrir ráðstefnu á Grand hóteli Reykjavík, kl. 8-16. Ráðstefnan ber yfirskriftina Ný hugsun í geðheilbrgiðismálum, en yfirskrift Alþjóða geðheilhrigðisdagsins að þessu sinni er: Vaxandi vitund - aukin von: Saman eflum við geðheilbrigði og drögum úr sjálfsvígum. Lesa meira
 

Fulltrúi notenda ráðinn á geðsvið LSH - 14.3.2006

Stórt skref til framfara var stigið í málefnum geðsjúkra nú á dögunum þegar fulltrúi notenda á geðsviði var ráðinn á Landspítala háskólasjúkrahús. Tilgangurinn er m.a. að efla notendaþekkingu starfsfólks á geðsviði sjúkrahússins. Lesa meira
 

Yfir 100 þúsund seglum með Geðorðunum 10 dreift til landsmanna - 8.12.2005

Að undanförnu hefur verið að berast inn á heimili landsmanna segulspjald með Geðorðunum 10. Um er að ræða eins konar jólagjöf frá Lýðheilsustöð og sveitarfélögum í landinu. Alls lét Lýðheilsustöð framleiða rúmlega 100.000 segulspjöld. Lesa meira
 

Ráðstefna um geðheilbrigðismál 7. október - 4.10.2005

Hluti dagskrár í tilefni af alþjóða geðheilbrigðisdeginum er ráðstefna á Hótel Loftleiðum föstudaginn 7. október kl. --Sérstök athygli er vakin á fyrirlestri Chris Bale, framkvæmdastjóra samtakanna Partnership for Children en þar segir hann m.a. frá verkefninu Vinir Zýppí sem nýhafið er hjá Lýðheilsustöð. Lesa meira
 

Að vera manneskja - fræðsluerindi í Gerðubergi í dag - 4.10.2005

Í tilefni Alþjóðlega geðheilbrigðisdagsins, 10. október 2005, verður starfsfólk geðsviðs Reykjalundar með fræðsluerindi í Gerðubergi þann 4. október, kl. 14:00 og 16:30. Erindi er ætlað öllum sem áhuga hafa og er það hluti fræðslu sem boðin er í endurhæfingardagskrá Reykjalundar undir yfirskriftinni „Að vera manneskja“. Lesa meira
 

Geðorðin 10 á strætisvögnum í Reykjavík - 27.9.2005

Geðrækt á strætó, smella á myndina til að stækka

Frá og með 23. september birtast Geðorðin 10 á öllum strætisvögnum í Reykjavík, eitt geðorð á hverjum vagni, og verða geðorðin á vögnunum í einn mánuð.

Lesa meira
 

Geðhlaupið 8. október - 26.9.2005

Alþjóða geðheilbrigðisdagurinn er 10. október og í tilefni af honum er fjölbreytt dagskrá til að minna okkur á að það er engin heilsa án geðheilsu. Einn liður þar í er Geðhlaupið í Nauthólsvík 8. október. Lesa meira
 

Það er engin heilsa án geðheilsu - 19.9.2005

Alþjóða geðheilbrigðisdagurinn er 10. október, en í tengslum við daginn er um allan heim ýmislegt á dagskrá til að vekja athygli á geðheilbrigðismálum. Síðastliðið ár var yfirskrift alþjóða geðheilbrigðisdagsins „Tengslin milli líkamlegrar og andlegrar heilsu” og byggir þema dagsins í ár á þeirri yfirskrift með áherslunni „Andleg og líkamleg heilsa yfir æviskeiðið”. Markmiðið er að vekja fólk til vitundar um að tengslin milli andlegrar og líkamlegrar heilsu eru órjúfanleg. Lesa meira
 

Alþjóða geðheilbrigðisdagurinn 10. október og annað geðheilbrigðisstarf - 26.8.2005

Alþjóða geðheilbrigðisdagurinn er 10. október og í tengslum við hann er margþætt dagskrá framundan. Lýðheilsustöð, Geðhjálp, Rauði krossinn og Landlæknisembættið hafa gert með sér samkomulag um samstarf að geðheilbrigðsismálum sem m.a. lýtur að námskeiðshaldi fyrir aðstandendur geðsjúkra, og fleiri, í öllum landsfjórðungum. Næsta námskeið verður í Borgarnesi 3. september. Lesa meira
 

Geðheilsa og offita - 11.8.2005

Í 7. tbl. Læknablaðsins, 91. árg. 2005, er áhugaverð umfjöllun Kristins Tómassonar, læknis, um tengsl geðheilsu og offitu. Kristinn bendir þar m.a. á að ekki sé síður mikilvægt að vera vakandi fyrir þeim áhrifum sem það hefur á offeitan einstakling að mæta sífellt neikvæðu viðhorfi frá samferðamönnum sínum,  jafnt á vinnustað sem annars staðar, eins og þeim neikvæðu áhrifum sem offita hefur á líkamann. Lesa meira
 

Rúmur helmingur unglinga veit nú hvað geðheilsa er - 8.8.2005

Töluverð breyting hefur orðið á hugmyndum unglinga um geðheilsu frá árinu 2001 til ársins í ár – mun fleiri unglingar vita hvað geðheilsa er eða um 52% samanborið við 22% árið 2001. Þetta kemur fram í nýrri könnun Dóru Guðrúnar Guðmundsdóttur á þekkingu nemenda í Vinnuskóla Reykjavíkur á geðheilbrigði.

Lesa meira

 

„Vinir Zippý“ námsefnið á Íslandi - 27.7.2005

Hjá LýðheilsustöðVinir er að hefjast verkefnið Vinir Zippý eða „Zippy´s Friends“ sem er forvarnarverkefni á sviði geðheilsu fyrir börn (geðrækt fyrir börn). Um er að ræða námsefni ætlað 6-7 ára börnum sem notað hefur verið með góðum árangri víða um heim. Í vetur verður íslenska þýðing námsefnisins forprófuð á þremur stöðum. Lesa meira
 

Lítill hluti fer til forvarna! - 2.5.2003

Samkvæmt Landlækni, Sigurði Guðmundssyni, er einungis 0.16 % af þeim fjármunum sem fara til heilbrigðis- og tryggingakerfisins ráðstafað sérstaklega til forvarna. Lesa meira
 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica