Sími : 5 800 900
Geðrækt

Velgengni og vellíðan

17.12.2007

Velgengni og vellíðan, smella á mynd til að stækkaLýðheilsustöð kynnir nýútgefna bók sína Velgengni og vellíðan - Um geðorðin 10 í Borgarbókasafninu, Tryggvagötu, í hádeginu í dag og við sama tækifæri tekur heilbrigðisráðherra, Guðlaugur Þór Þórðarson, formlega við eintaki af bókinni. Kynningarfundurinn er öllum opinn.

Það er höfundur bókarinnar, Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, sálfræðingur og verkefnisstjóri hjá Lýðheilsustöð, sem kynnir hugmyndina að baki bókinni og afhendir ráðherra eintak.
Áheyrendur á kynningarfundinum. Smella á mynd til að stækka. Fundurinn í Borgarbókasafninu, Tryggvagötu, hefst kl. 12:30 og eru allir velkomnir.

Dagskrá

  • Þórólfur Þórlindsson, forstjóri Lýðheilsustöðvar, býður gesti velkomna
  • Hvers vegna eru sumir hamingjusamari en aðrir?
    Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, sálfræðingur kynnir hugmyndafræði bókarinnar Velgengni og vellíðan – um geðorðin 10
  • Heilbrigðisráðherra, Guðlaugi Þór Þórðarsyni, afhent eintak af bókinni
  • Samfélagsleg ábyrgð fyrirtækja um geðrækt í landinu
    Ýmis fyrirtæki hafa styrkt Geðrækt í áranna rás. Fulltrúum þeirra verður afhent eintak af bókinni.
  • Ágóði af sölu bókarinnar rennur til góðgerðarmála og verða þau kynnt á fundinum.
Dóra og Guðlaugur Þór Dóra Guðrún Guðmundsd. Ungir fiðluleikarar.
Dóra Guðrún Guðmundsdóttir afhendir Guðlaugi Þór Þórðarsyni eintak af bókinni. smella á mynd til að stækka. Dóra Guðrún. Smellið á myndina til að stækka.  Ungir fiðluleikarar léku jólalög. Smella á mynd til að stækka.


Um bókina

Hugmyndin með útgáfu bókarinnar er að gera grein fyrir fræðunum sem liggja að baki geðorðunum 10, en þau ættu að vera flestum landsmönnum vel kunn.
,,Ég er sannfærð um að langlífi geðorðanna og sú staðreynd að þau ná til mismunandi fólks á öllum aldri felst í því að þau byggjast á rannsóknum á lífsháttum fjölda fólks, á öllum aldri, um allan heim,” segir Dóra Guðrún. Í bókinni eru góð ráð um það hvernig rækta megi geðheilsuna og auka þannig vellíðan.

2. geðorð: Hlúðu að því sem þér þykir vænt um
Geðorð, síða 12. Smella á mynd til að stækka.  Geðorð, síða 13. Smella á mynd til að stækka.


Eftir að geðorðin 10 birtust í upphafi hafa viðtökur þjóðarinnar verið ótrúlegar. Þá voru þau prentuð á póstkort og boli, síðar birtust þau í bæklingi um geðrækt, á strætisvögnum og seglum sem sendir voru á heimili landsmanna þar sem margir hverjir rötuðu á ísskápinn og eru þar enn. Hugleiðingar um geðorðin hafa einnig birst í ýmsum blöðum og hljómað í útvarpi.

Ágóðinn rennur til góðgerðarmála

Velgengni og vellíðan, kynning. Smella á mynd til að stækka.Bókin fæst í verslunum víða um land en um leið og þeir kaupa bókina, sem hafa áhuga á að vita meira um velgengni og vellíðan, fyrir sjálfa sig eða aðra sem þeir vilja gefa þessi góðu ráð, þá eru þeir að styrkja samtök sem stuðla að vellíðan annarra. Ágóði af sölu bókarinnar rennur til góðgerðarmála. Þannig hlúum við að samborgurum okkar (2. geðorðið) og hvetjum aðra í kringum okkur (7. geðorðið). 



Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica