Segulmottur með reglum um útivistartíma
Sú ákvörðun hefur verið tekin af Áfengis- og vímuvarnaráði að gefa motturnar að þessu sinni. Ástæða þessa er sú að búið var að framleiða segulspjöld áður en ný barnaverndarlög tóku gildi. Upplýsingar um útivistartíma á spjöldunum eru enn í fullu gildi. Það sem hefur breyst með tilkomu nýrra barnaverndarlaga er númer lagagreinarinnar sem tekur til útivistartíma, hún var áður nr. 57 en er nú nr. 92. Auk þess miðast aldursmörk ákvæðis nú við fæðingarár í stað fæðingardags áður. Ákvæðið er því hliðstætt því sem var í 57. gr. fyrri laga. Þó er miðað við að sömu reglur gildi um land allt. Ekki er lengur gert ráð fyrir því að sveitarstjórnir geti vikið frá þessum reglum í sérstökum samþykktum.
Það upplag sem prentað var af segulspjöldum nægir til dreifingar í 2. og 7. bekk grunnskólanna utan Reykjavíkur. Einnig er vakin athygli á veggspjöldum með yfirskriftinni ?Inn á slaginu? en þar er kveðið á um reglur um útivistartíma.
Áfengis- og vímuvarnaráð hefur umsjón með prentun og dreifingu segulmottanna. Þau sveitarfélög sem áhuga hafa á að fá segulmottur til dreifingar í sinni heimabyggð geta haft samband við Áfengis- og vímuvarnaráð í síma 585 1470 eða með því að senda póst. Póstburðargjald greiðist af viðtakanda.
Hægt er að sækja myndirnar hér fyrir neðan í stærri útgáfu (jpg) með því að smella á þær.
![]() |
![]() |


