Bæklingur um vímuefni og meðgöngu
Landlæknir hvetur barnshafandi konur til að neyta hvorki áfengis né annarra vímuefna.
Bæklingurinn ?Vímuefni og meðganga? er gefinn út af Áfengis- og vímuvarnaráði í samvinnu við Landlæknisembættið og Miðstöð mæðraverndar. Sólveig Jónsdóttir, sérfræðingur í klínískri taugasálfræði barna, veitti ráðgjöf. Í bæklingnum er að finna upplýsingar um hvaða afleiðingar það getur haft á fóstur ef barnshafandi kona neytir áfengra drykkja og/eða annarra vímuefna á meðgöngu. Verðandi foreldrum verður afhentur bæklingurinn við fyrstu skoðun á meðgöngu.
Landlæknisembættið annast dreifingu bæklingsins til heilsugæslustöðva og heilbrigðisstofnana um allt land. Aðrir sem vilja nýta sér hann, t.d. til fræðslu og kennslu, geta nálgast hann hjá Áfengis- og vímuvarnaráði, Miðstöð mæðraverndar eða Landlæknisembættinu.
Þú getur lesið bæklinginn á pdf formi með því að smella hér.
Efnisyfirlit:
Undirbúningstími
Með hugann við barnið
Er áfengi skaðlegt fyrir barnið?
Þegar þungunin uppgötvast
Hve mikil drykkja er skaðleg?
Hvað getur gerst?
Er munur á bjór, borðvíni og sterkara áfengi?
Hvað ef þungunin uppgötvast seint?
Hvað með ólögleg vímuefni?
Hefur áfengis- eða vímuefnaneysla föður áhrif á barnið?
Er aukin hætta á fósturláti hjá konum sem neyta áfengis á meðgöngu?
Skaðast barnið ef móðirin drekkur aðeins við hátíðleg tækifæri?
Eiga barnshafandi konur að hætta að taka lyf?
Er hollt að drekka rauðvín á meðgöngu vegna þess hversu járnríkt það er?
Brjóstagjöf og áfengi
Auk þessa er að finna í bæklingnum lista yfir staði sem hægt er að leita til og fá upplýsingar.
Hér fyrir neðan eru tenglar inn á greinar þar sem fjallað er um afleiðingar þess að neyta áfengis og annarra vímuefna á meðgöngu:
Skelfilegur misskilningur að neysla áfengis sé holl
Áfengisneysla á meðgöngu
Vímuefni og meðganga
