Sími : 5 800 900
Áfengi og vímuefni

Sjálfsvíg og sjálfsvígstilraunir meðal íslenskra ungmenna

23.10.2002

Sjálfsvígstilraunir meðal íslenskra framhaldsskólanema árin 1992 og 2000 og alþjóðlegur samanburður á sjálfsvígstíðni meðal 15 - 24 ára ungmenna 1951 - 2000

Í skýrslunni, sem er gefin út á vegum Landlæknisembættisins, er greint frá tíðni sjálfsvíga og sjálfsvígstilrauna meðal íslenskra ungmenna árin 1992 og 2000 og kynnum þeirra af slíkum vandamálum í nánasta umhverfi sínu. Í skýrslunni er einnig gerð grein fyrir alþjóðlegum samanburði á sjálfsvígstíðni meðal 15 – 24 ára ungmenna á árunum 1951 – 2000.

Skýrslan var unnin af Rannsóknum og greiningu að tilhlutan Landlæknisembættisins. Skýrslan byggir m.a. á niðurstöðum rannsóknarverkefnisins Ungt fólk á Íslandi en gagnaöflun vegna rannsóknarinnar var unnin með tilskyrk Áfengis- og vímuvarnaráðs og fleiri stofnanna.

Ein meginniðurstaða þessarar athugunar er sú að félagsleg einangrun, vímuefnaneysla og sjálfsvígsatferli annarra, sem standa nærri viðkomandi, eru allt sjálfstæðir áhættuþættir sem auka líkur á sjálfsvígstilraunum framhaldsskólanema.

Smelltu hér til að sjá niðurstöður

Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica