Auglýst hefur verið eftir styrkjum úr Forvarnasjóði
Styrkir úr Forvarnasjóði
Lýðheilsustöð auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Forvarnasjóði, skv. lögum nr. 18/2003 – 96/1995 og reglugerð 361/1999. Tilgangur sjóðsins er að stuðla að forvörnum á sviði áfengis- og vímuvarna og eru styrkir veittir á grundvelli verkefna.
Veittir verða styrkir til almennra verkefna og rannsókna auk þess sem hluta Forvarnasjóðs verður varið til styrktar áfangaheimila.
Við úthlutun styrkja verða hafðar í huga niðurstöður nýjustu rannsókna, fyrirliggjandi upplýsingar um vímuefnaneyslu og forvarnir í samfélaginu og að jafnvægi sé á milli landshluta. Litið verður á samvinnu um verkefni og mótframlög annarra sem kost. Ekki verða veittir styrkir til almenns reksturs hópa eða félagasamtaka.
Lýðheilsustöð áskilur sér rétt til að:
1. Senda umsóknir til umfjöllunar fagaðila og óska eftir nánari upplýsingum um verkefni, framkvæmdaaðila og fjármögnun.
2. Skilyrða styrkveitingar og ákveða að styrkir verði greiddir út í samræmi við framvindu verkefnis.
Félög, samtök og opinberar stofnanir geta sótt um styrki. Einstaklingar geta að jafnaði einungis sótt um styrki til rannsóknaverkefna.
Umsóknarfrestur er til 28. febrúar 2005 og skal sótt um á eyðublöðum sem eru á heimasíðu Lýðheilsustöðvar. Sé sótt um styrk til framhaldsverkefna þarf framvinduskýrsla að liggja fyrir. Styrki, sem veittir eru á árinu, þarf að sækja fyrir 31.12.2005.
Lýðheilsustöð auglýsir jafnframt lokafrest til þeirra aðila sem áður hafa fengið úthlutað úr sjóðnum, þ.e.a.s. fyrir árið 2004. Frestur er gefinn til 15.02.2005 til að senda inn framvinduskýrslu og í samræmi við hana verður metið hvort til greiðslu komi eða ekki. Eftir þennan lokafrest fellur ósóttur styrkur niður.
Lýðheilsustöð ráðstafar fé Forvarnasjóðs í samráði við ráðherra að fengnum tillögum áfengis- og vímuvarnaráðs. Nánari upplýsingar fást á skrifstofu Lýðheilsustöðvar, sími 5 800 914 og á heimasíðunni www.lydheilsustod.is en þar er sótt rafrænt um styrkinn.
