Sími : 5 800 900
Áfengi og vímuefni

Fræðslubæklingar um áfengi

24.1.2005

Nýkomnir eru út á vegum Lýðheilsustöðvar tveir fræðslubæklingar um áfengi undir heitinu: Hvað veistu um áfengi? Annar bæklingurinn er ætlaður fullorðnum en hinn ungu fólki.

Smella á myndina til að skoða bæklinginnBæklingarnir eru gefnir út til að bregðast við skorti á aðgengilegu fræðsluefni um Smella á myndina til að skoða bæklinginnáfengi, áhrif þess og skaðsemi. Í stuttu máli eru þar gefnar upplýsingar um mismunandi áhrif áfengis á fólk eftir aldri þess, kyni og stærð sem og eftir því magni sem drukkið er, styrkleika áfengisins, hversu hratt það er drukkið og við hvaða aðstæður. Einnig hversu langan tíma það tekur að losna við áfengið úr líkamanum.

Bæklingurinn fyrir fullorðna liggur m.a. frammi í öllum Vínbúðunum og heilsugæslustöðvum en bæklingnum fyrir ungt fólk verður dreift til allra framhaldsskólanema auk þess sem hann mun liggja frammi á heilsugæslustöðvum og menningarhúsum ungs fólks. Að sjálfsögðu er með honum ekki verið að hvetja til unglingadrykkju heldur þvert á móti; miðla staðreyndum um áfengi sem auðveldar fólki að taka upplýsta ákvörðun um það hvort það ætli að drekka áfengi, hvers vegna, hvenær og þá hvar.

Bæklingarnir voru unnir af Lýðheilsustöð með aðstoð fagráðs og eru gefnir út í samvinnu við ÁTVR og eru liður í forvarnastarfi stofnananna.

Bæklingana er hægt að skoða og panta á heimasíðunni



Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica